Samkomulag um yfirtöku Árvakurs á Fréttablaðinu stendur Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. nóvember 2008 12:02 Ari Edwald og Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnendur 365.
Það hefur enginn stefnubreyting orðið af hálfu 365 varðandi það samkomulag sem gert var um að Fréttablaðið renni inn í Árvakur og 365 eignist hlut í félaginu. Þetta segir Ari Edwald, forstjóri 365, í samtali við Vísi. Á forsíðu Morgunblaðsins er því slegið fram að aðaleigendur 365 hafi ekki lengur áhuga á að standa við samninginn um að Fréttablaðið sameinist Árvakri. Þetta hafi orðið ljóst eftir að Rauðsól, félag í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, keypti fjölmiðlahluta 365 út úr félaginu. Ari segir það vera mjög mikilvægt fyrir rekstur félaganna að samruninn nái fram að ganga. Hann bendir þó á að samkomulagið sé háð hluthafafundi og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Einar Sigurðsson, forstjóri Árvakurs, tekur í sama streng. Hann segir að sú hugmynd hafi ekki verið rædd að samrunanum yrði rift og ekkert bendi til annars en að hann gangi eftir. „Þessi samningur er til staðar og fjallar um það að Árvakur eignist Fréttablaðið og við greiðum fyrir það með yfirtöku skulda með útgáfu nýs hlutafjár og það hefur ekkert breyst í því," segir Einar. Hann segir að verið sé að vinna að því í fyrirtækinu að þessi samruni gangi í gegn.Starfsemi EFG og Senu vanmetin Ari segir að í umræðunni um kaup Rauðsólar á fjölmiðlahluta 365 hafi aðrir hlutar í rekstri félagsins verið vanmetnir. Mörg félög sem starfi á Íslandi séu jafn skuldsett eða jafnvel skuldsettari en EFG og Sena. Það sé mikill misskilningur að til standi að sigla rekstri þeirra í þrot. Hann bendir á að fyrir helgi hafi verið samið um kaup Senu á verslunum Skífunnar og það sé fremur til vitnis um frekari skuldbindingar gagnvart þeim rekstri en að til standi að sigla fyrirtækjunum í þrot.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira