Handbolti

FCK vann fyrsta leikinn gegn GOG

Arnór Atlason
Arnór Atlason Mynd/Birkir Baldvinsson

FCK vann í kvöld fyrsta leikinn gegn GOG í úrslitarimmu liðanna um danska meistaratitilinn í handbolta. FCK hafði betur 36-29 á heimavelli sínum, en næsti leikur fer fram á heimavelli GOG.

Arnór Atlason skoraði tvö mörk fyrir FCK í kvöld en Snorri Steinn Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir gestina.

Vinni FCK næsta leik á þriðjudag, verður liðið danskur meistari, en GOG getur með sigri knúið fram oddaleik í Kaupmannahöfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×