Björgólfsfeðgar tilbúnir með 26 milljarða lán til að bjarga Eimskip 10. september 2008 01:53 Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.
Feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson fara fyrir hópi fjárfesta sem er tilbúinn til að veita Eimskip víkjandi lán að upphæð um 26 milljarðar fari svo að ábyrgð vegna XL Leisure Group falli á félagið eins og líkur eru á samkvæmt tilkynningu sem það sendi Kauphöllinni fyrir skömmu. Eimskip hefur verið í ábyrgð fyrir 280 milljón dollara láni Landsbankans allt frá sölu félagsins á XL Leisure Group og hefur ekki tekist að endurfjármagna kaupin til að koma Eimskip undan ábyrgðinni. Í tilkynningunni segir að miðað við þá stöðu sem sé uppi á evrópskum flugmarkaði þá sé almennt líklegra en að ábyrgðin falli á Eimskip. Félagið var sett á athugunarlista Kauphallarinnar í gærmorgun. Falli ábyrgðin á félagið, mun hópur fjárfesta undir forystu feðganna kaupa kröfuna og fresta gjalddaga hennar. Jafnframt er fyrirhugað að hún muni víkja fyrir kröfum annarra lánardrottna á hendur Eimskip. Með þessum aðgerðum eru takmörkuð þau áhrif sem ábyrgðir vegna lána og annarra skuldbindinga vegna XL samstæðunnar kunna að hafa á starfsemi Eimskips. „Endurfjármögnun XL hefur verið stór þáttur í að losa Eimskip undan umræddum ábyrgðum. Við vonumst enn til þess að það ferli klárist en viljum jafnframt benda á að það ferli kann að reynast erfiðara en áður var talið. Komi til þess að ábyrgðin falli á Eimskip hafa öflugir fjárfestar lýst sig reiðubúna til að styðja við félagið sem ég tel mjög jákvætt. Markmið okkar er að eiginfjárhlutfall félagsins sé yfir 25%. Í því samhengi er unnið að ýmsum aðgerðum í rekstri félagsins. Tilgangur þessara aðgerða er að lækka skuldir Eimskip umtalsvert og þar með styrkja fjárhag félagsins og eiginfjárhlutfall," segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, í tilkynningunni. Eimskip hefur átt erfitt uppdráttar á þessu ári. Hlutabréf félagsins hafa fallið um rúm 70% það sem af er árinu. Félagið þurfti að afskrifa níu milljarða fjárfestingu sína í breska félaginu Innovate fyrr í sumar og við hálfs árs uppgjör var eiginfjárhlutfall þess rétt um 14%. Jafnframt hefur ábyrgð Eimskip á 26 milljarða láninu vegna XL Leisure Group legið á félaginu eins og mara. Með aðkomu Björgólfsfeðga, sem er næststærstu hluthafar félagsins, er tryggt að eigið fé félagsins skerðist ekki meira en raunin er í dag jafnvel þótt ábyrgðin falli öll á Eimskip. Ekki er vitað á þessari stundu hvort víkjandi lán Björgólfsfeðga muni breytast í hlutafé eftir ákveðinn tíma.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira