Óljóst hvort Salt muni styðja ríkisvæðingu Glitnis 30. september 2008 12:19 Róbert Wessman er eigandi Salt Investments.
Árni Harðarson, forstjóri Salt Investments, segir að þar á bæ séu menn súrir yfir atburðum gærdagsins þegar ríkið yfirtók Glitni að stórum hluta. Salt Investments, sem er í eigu Róberts Wessman, var sjöundi stærsti hluthafinn í Glitni og reiknað er með að félagið hafi tapað tæpum fimm milljörðum á gjörningnum. Hann segir þó að Salt muni þola ágjöfina. Óvíst er hvort Salt muni styðja ríkisvæðinguna á hluthafafundi. „Við erum auðvitað mjög súrir yfir því tapi sem við lendum í," segir Árni í samtali við Vísi. Hann segir að Salt Investment muni þola þessa ágjöf, „Við þolum þetta alveg, en menn eru ekki kátir. Við verðum bara að kyngja þessu tapi ef það verður raunverulegt, það er bara þannig, því miður." Á dögunum var sagt frá því að Salt Investments ætlaði að leggja tvo og hálfan milljarð inn í Actavis. Árni segir að fréttir helgarinnar hafi engin áhrif á það mál. Árni segist eiga erfitt með að meta hvort hluthafar Glitnis eigi eftir að samþykkja gjörninginn. „Það þarf auðvitað tvo þriðju hluthafa til þess að samþykkja þetta og ég veit bara ekki hvort þetta er klappað og klárt eða ekki. En það er allavega búið að opna fyrir viðskipti með bréfin, sem kom kannski mörgum á óvart." Að mati Árna og félaga hans hjá Salt voru margar aðrar leiðir færar í stöðunni. „En þetta var leiðin sem var valin og við erum að meta stöðuna núna." Hann segir óljóst hvort Salt muni leggjast gegn tillögunni þegar hún verður lögð fyrir hluthafa. „Ég veit það ekki,það eru nú einhverjir dagar í þennan fund og við þurfum aðeins að sjá hvað gerist í framhaldinu. Miðað við hvað getur gerst á einni helgi þá gæti nú ýmislegt gerst á þeim tíma sem líður fram að fundinum." Árni segist telja að flestir hluthafanna séu að reyna að meta stöðuna, hver endapunkturinn verði í þessu tafli. „Ég held að hann liggi ekki alveg fyrir." Hann segist ekki vilja að svo stöddu gagnrýna aðdragandann og vinnubrögðin í málinu enda viti hann ekki nægilega mikið um það mál. „Við erum að reyna að komast til botns í þessu máli. Ef að sú skoðun leiðir í ljós að það hafi eitthvað verið athugavert við þessu vinnubrögð munum við gagnrýna það. Við vorum ekki með á neinum fundum um helgina. Jón Ásgeir virðist hafa verið það og hann er að gagnrýna málið í Fréttablaðinu. Við erum því bara ekki í stöðu til þess eins og er," segir Árni að lokum.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira