Fallið aldrei verið meira Jón Aðalsteinn Bergsveinsson og Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. september 2008 18:00 miðlarar í kauphöllinni Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur aldrei fallið meira á einum degi en hún gerði í gær. Fréttablaðið/valli
Úrvalsvísitalan féll um 4,8 prósent í gær en það er mesta fall hennar á einum degi frá upphafi. Þá féll krónan um 3,6 prósent eftir viðvarandi veikingu fram eftir degi og hefur krónan aldrei verið veikari. Gengisvísitala krónunnar endaði í 186,6 stigum í gær. Hún „Krónan veiktist hratt í upphafi dags og styrktist svo aftur lítilega rétt fyrir klukkan tíu. Eftir það hóf hún veikingarferli á nýjan leik í mikilli veltu en velta nam 67,4 milljörðum króna,“ bendir greiningardeild Landsbankans á. Helstu erlendu gjaldmiðlarnir fóru í hæstu hæðir gagnvart krónu að Bandaríkjadal undanskildum, sem til skamms tíma fór í rúmar 100 krónur. Dollarinn hefur ekki verið dýrari síðan snemma í apríl árið 2002. Af Úrvalsvísitölufélögunum svokölluðu féll gengi bréfa í Existu mest, eða um 14,17 prósent en næstmest í Atorku, eða um 13,6 prósent. Gengi allra íslensku bankanna - að hlutabréfum Glitnis undanskildum sem voru stöðvuð í gærmorgun – féll á bilinu 13,4 til 3,6 prósenta. Mest var fall Spron en minnst á bréfum Kaupþings. Greiningardeild Landsbankans bendir í Vegvísi sínum á að bendir á að fyrir gærdaginn hafði mesta fallið verið í apríl 2006 og í maí 2001. Á fyrri hluta árs 2006 hafi staðið yfir svonefnd Íslandskrísa en lækkunin árið 2001 tengdist endalokum netbólunnar. Greining Glitnis bendir á að væntingavísitala Gallup fyrir september verður birt í dag og segir lítinn hug hefur verið í neytendum undanfarna mánuði. „Væntingar jukust þó lítið eitt í ágúst eftir að hafa mælst í sögulegu lágmarki mánuðina á undan. Ætla má að órói á fjármálamörkuðum í september liti mat neytenda á efnahagsástandinu svo og gengislækkun krónunnar í mánuðinum,“ segir í umfjöllun greiningardeildarinnar.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira