Viðskipti innlent

Bakkabræður eignast megnið af Exista fyrir milljarð króna

Lýður og Ágúst Guðmundssynir, eigendur Bakkavarar, hafa ákveðið að leggja Existu til 1 milljarð kr. í reiðufé í flóknum viðskiptum með tvö óskráð félög í eigu þeirra bræðra, Kvakki ehf/BBR ehf. Í framhaldinu eignast þeir 88% af Exista.

Samkvæmt þremur tilkynningum til kauphallarinnar hefur BBR ehf skráð sig fyrir 50.000.000.000 nýjum hlutum í Exista hf. Fyrir viðskiptin átti Bakkabraedur Holding B.V., félag einnig í eigu Lýðs og Ágústs, tæplega 6.408 milljón hluti í Exista. Eftir viðskiptin eiga félög tengd Lýð og Ágústi samtals sem nemur 87,9% af heildarhlutafé félagsins.

Í fyrstu tilkynningu um málið var rætt um skipti á 1 milljarði hluta í Kvakki efh. fyrir framangreinda 50 milljarða hluti í Exista. Í þriðju tilkynningunni er þetta orðið BBR ehf. Eftir því sem visir.is kemst næst eru hvorugt félagið skráð neinsstaðar í opinberum plöggum. Sigurður Nordal fjölmiðlafulltrúi Exista segir að skráning þeirra sé í ferli hjá fyrirtækjaskrá.

Samhliða þessu mun stjórn Exista leggja fram tillögu um heimild til hlutafjáraukningar í formi forgangsréttarútboðs til hluthafa á næsta ári. Gefst þeim þar með tækifæri til að vera með í enduruppbyggingu félagsins.

Þar sem um yfirtökutilboð er að ræða af hálfu þeirra bræðra hefur Exista sótt um undanþágu til Fjármáleftirlitsins um lágmarksverð í yfirtökutilboði. Er þetta gert í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem ríkja á markaðinum og að lokað hefur verið fyrir viðskipti með Exista undanfarnar 9 vikur. Gefi því síðasta dagslokaverð á hlut í Exista í kauphöllinni ekki rétta mynd af verði hlutabréfa félagsins.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×