Glitnir hafði milligöngu um lánafyrirgreiðslu fyrir Nevada Geothermal Power Inc 8. september 2008 17:27 Magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Glitnis.
Glitnir hefur, í samstarfi við Morgan Stanley & Company Inc., haft milligöngu um 180 milljón bandaríkjadala lánafyrirgreiðslu fyrir Nevada Geothermal Power Inc. Lánafyrirgreiðslan, sem fengin er hjá TCW Asset Management Company, verður nýtt til að fjármagna fyrsta áfanga í byggingu jarðhitavers Blue Mountain, „Faulkner 1." Framleiðslugeta orkuversins verður 49,5 MW og verður raforkan seld til Nevada Power Company með samningi til 20 ára. Þegar orkuverið tekur til starfa undir lok árs 2009 mun það sjá íbúum í suðurhluta Nevada fyrir 38.8 MW af hreinni, endurnýjanlegri orku, en töluverður vöxtur hefur verið í íbúafjölda á þessu svæði. Í fréttatilkynningu frá Glitni segir að samningurinn geri fyrirtækinu kleift að hefja framkvæmdir við byggingarfasa verkefnisins, sem marki stórt skref í sögu Nevada Geothermal Power. Glitnir hafi, á sínum tíma, haft milligöngu um lánafyrirgreiðslu til Nevada Geothermal Power að jafnvirði 20 milljóna bandaríkjadala. Það lán hafi verið nýtt til að fjármagna fyrsta hluta jarðorkuversins, borholusvæðið, innri uppbyggingu og ýmsan þróunarkostnað. Með þessu láni sé fyrirtækið nú mun nær því að geta lokið verkefninu og muni þannig brátt sjá suðurhluta Nevada fylkis fyrir nauðsynlegri grunnorku. Magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Glitnis, segir að forsvarsmenn bankans séu mjög stoltir af því að taka þátt í hinum vaxandi jarðhitaiðnaði í Bandaríkjunum og koma að fjármögnun og ráðgjafaþjónustu stórverkefna á borð við Blue Mountain.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira