Fundað um lán til Íslands í Stokkhólmi 5. nóvember 2008 23:43 Ingimundur Friðriksson.
Fulltrúar norrænu Seðlabankanna og fjármálaráðuneyta landanna funduðu í Stokkhólmi í dag um hugsanlega aðstoð hinna norrænu ríkjanna við Ísland í kreppunni. Eftir því sem fram kemur á fréttavef breska blaðsins Financial Times sat Ingimundur Friðriksson, einn seðlabankastjóra, fundinn fyrir hönd Íslands. Fundað var í fjármálaráðuneyti Svía og segir blaðið fundinn skýrt merki þess að Danmörk, Finnland og Svíþjóð muni líklega tilkynna um lánapakka til Íslands. Norðmenn hafa þegar ákveðið að lána Íslendingum 500 milljónir evra, jafnvirði um 80 milljarða króna.Þá segir FT að íslensk stjórnvöld vonist eftir því að fá svar á morgun eða hinn frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um tveggja milljarða dollara lán til Íslands. Þegar það hafi fengist muni norrænu bankarnir ræða um það frekar hversu mikla fjármuni þeir eru tilbúnir að lána. Fram kemur að Íslendingar telji sig þurfa um 6 milljarða dollara, um 700 milljarða króna, til þess að styrkja gjaldeyrisforðann og koma gjaldeyrismálum aftur í lag eftir hrun bankanna. FT segir að auk Ingimundar hafi Audun Gronn, yfirmaður alþjóðadeildar norska seðlabankans, Barbro Wickman-Parak, varaseðlabankastjóri seðlabanka Svíþjóðar, og fulltrúar frá seðlabönkum og fjármálaráðuneytum Finnlands og Danmerkur setið fundinn.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira