Skýrist á næstum dögum hvort Straumur og Landsbankinn sameinist 28. september 2008 18:44
Á næstu dögum mun skýrast hvort Landsbankinn og Straumur sameinist. Allt veltur á því hvort skýrslur matsfyrirtækja á borð við Fitch og Moodys verði jákvæðar eða neikvæðar í garð samrunans. Skýrslurnar eiga að liggja fyrir í vikunni. Unnið hefur verið að því í nokkurn tíma á bak við tjöldin að finna út hvort samruni þessara tveggja banka muni vera til góðs. Heimildir fréttastofu herma að umsagnir erlendra matsfyrirtækja skipti þar mestu máli og þær muni liggja fyrir í vikunni. Ef lánhæfismat sameinaðs banka verður lægra en það sem bankanir tveir búa við í dag verður samruninn sleginn af borðinu. Þegar kemur að því að meta ágóðann af sameiningu bankanna tveggja verður að hafa í huga að feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson eru stærstu hluthafar í bæði Landsbankanum og Straumi. Með sameiningunni verður til mun stærri eining sem gerir það að verkum að hægt er að hagræða verulega í rekstri. Til að mynda reka báðir bankarnir rándýr útibú í London. Þótt Straumur sé með viðskiptabankaleyfi, þá er bankinn fyrst og fremst fjárfestingabanki og eftir því sem fréttastofa kemst næst þá eru engin innlán hjá bankanum. Með því að sameinast viðskiptabanka eins og Landsbankanum þá muni öll fjármögnun verða auðveldari. Ekki náðist í Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóra Landsbankans, við vinnslu þessarar fréttar en Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðlafulltrúi Straums, sagði það stefnu bankans að tjá sig ekki um orðróm á markaði.
Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Fleiri fréttir Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Sjá meira