Ofboðslega stoltur af liðinu Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar 16. ágúst 2008 15:24 Landsliðsþjálfararnir Guðmundur Guðmundsson og Óskar Bjarni Óskarsson. Mynd/Vilhelm „
Það er rosalega þungu fargi létt af mér núna. Mér finnst við vera búnir að vinna fyrir þessu og eigum þetta skilið," sagði glaðbeittur þjálfari íslenska landsliðsins, Guðmundur Guðmundsson, eftir jafnteflið mikilvæga gegn Dönum sem tryggði Íslandi farseðilinn í átta liða úrslit í handboltakeppni Ólympíuleikanna. „Við náðum þessu á eigin forsendum og tryggðum þetta sjálfir. Ég er ofboðslega stoltur af liðinu og þeim karakter sem það sýndi í leiknum. Það var frábært að sjá þetta Við vorum í vandræðum í vörninni framan af en sýndum þolinmæði og þrautseigju. Varnarleikurinn var miklu betri í síðari hálfleik og Hreiðar datt í gang með betri vörn sem hann hafði ekki þessa vörn í fyrri hálfleik. Við áttum það inni að ná stigi gegn Dönum eftir mörg svekkjandi töp á síðustu árum," sagði Guðmundur í samtali við Henry Birgi Gunnarsson, blaðamann Fréttablaðsins, sem staddur er í Peking. Logi Geirsson fékk að líta rauða spjaldið í leiknum og var ekki par ánægður með það. „Þetta rauða spjald var ósanngjarnt og alger óþarfi. Ég snerti varla manninn. Ég nenni annars ekkert að velta mér upp úr þessu. Jafntefli varð raunin og mér er alveg sama um allt annað. Nú er það bara átta liða úrslitin fram undan og mikið fjör," sagði Logi Geirsson sem var rekinn upp í stúku fyrir litlar sem engar sakir af slökum sænskum dómurum. Þjálfari danska landsliðsins var verulega svekktur eftir leikinn og sagði í samtali við Danmarks Radio að Íslendingar hafi stolið sigrinum af Dönum
Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Kane bjargaði enskum Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Fótbolti Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira