Þjóðnýting Glitnis afdrifarík afglöp 5. október 2008 08:00
Alvarleg afglöp að bregðast við lausafjárkreppu Glitnis með þjóðnýtingu, segir Richard Portes, prófessor í London. Seðlabanki Íslands hafi alls ekki sinnt skyldum sínum. Mikilvægt sé að halda stillingu, meðan ríkisstjórn vinni að lausn. "Hin óvænta og óskiljanlega þjóðnýting íslenska ríkisins á Glitni hleypti skriðu af stað sem verður að stöðva með öllum ráðum," segir dr. Richard Portes, prófessor við London Business School.Hann skrifaði skýrslu í fyrra ásamt Friðriki Má Baldurssyni, prófessor við Háskólann í Reykjavík, fyrir Viðskiptaráð Íslands um stöðu og framþróun íslenska fjármálakerfisins. Hefur hann verið tíður viðmælandi erlendra fjölmiðla um íslenskt fjármálalíf æ síðan og dregið upp aðra og jákvæðari mynd af stöðu mála hér og styrk bankanna en ýmsir aðrir."Ástandið sem nú geisar á alþjóðlegum fjármálamörkuðum er grafalvarlegt, en það tengist ekkert íslenskum aðstæðum sérstaklega. Athygli umheimsins beindist hins vegar öll að íslenska fjármálakerfinu við hina óvæntu þjóðnýtingu Glitnis, sem verða að teljast afar afdrifarík afglöp af hálfu Seðlabanka Íslands," segir Portes.Hann kveðst hafa skoðað hálfs-árs uppgjör íslensku bankanna og undirliggjandi eignir þeirra séu góðar, en skortur sé á lausafé rétt eins og hjá flestum bönkum í veröldinni. Af þeim sökum hafi allir seðlabankar dælt peningum til þeirra gegn margvíslegum veðum í samræmi við hlutverk þeirra sem lánveitanda til þrautavara."Þjóðnýtingin er risastórt inngrip sem vekur mikla athygli og fleiri spurningar en svör. Við bætist að formaður bankastjórnar Seðlabankans segir að án þjóðnýtingar hefði Glitnir orðið gjaldþrota. Það eru fráleit ummæli um banka sem glímir við tímabundinn lausafjárskort við furðulegar aðstæður á alþjóðamörkuðum, en er að öðru leyti vel rekinn og með góða eiginfjárstöðu. Þau ættu fremur við um banka sem er hreinlega kominn í greiðsluþrot. Ég hef engan heyrt halda því fram að Glitnir hafi verið svo illa staddur," segir Portes og bætir við að þjóðnýtingin komi mjög illa við Kaupþing og Landsbankann, enda hafi vantraust í garð íslensks efnahagslífs aukist við þetta um allan helming.Portes segist viss um að unnið sé að nauðsynlegum aðgerðum á vegum ríkisstjórnarinnar. Þær verði að koma sem allra fyrst. Hann hvetur þó stjórnvöld og ráðgjafa ríkisstjórnarinnar að láta ráðgjöf Seðlabankans lönd og leið, því þar á bæ hafi menn ítrekað gert afdrifarík mistök, meðal annars með því að auka ekki gjaldeyrisvaraforðann, rýmka ekki reglur um veð í endurhverfum viðskiptum eða vinna frekar í sameiginlegum aðgerðum með öðrum seðlabönkum. Þá sé óskiljanlegt hvernig Seðlabankinn hafi unnið þegar kemur að gjaldeyrismálum almennt.Hann bendir á að gagnrýnin geti ekki aðeins átt við um Davíð Oddsson, formann bankastjórnar Seðlabankans, því tveir aðrir skipi bankastjórnina, þeir Ingimundur Friðriksson og Eiríkur Guðnason. "Ég á síður von á að hreyft verði við þessum mönnum. En ég hvet ríkisstjórnina til að leita annað eftir ráðum. Staðan er mjög alvarleg og mikilvægt að halda ró sinni og taka yfirvegaðar ákvarðanir sem skila sér til lengri tíma," segir Richard Portes.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira