Viðskipti innlent

Viðskiptaráðherra kallar eftir upplýsingum um þróun olíuverðs

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra.
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra.

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra hefur kallað eftir upplýsingum frá Neytendastofu og Samkeppniseftirlitinu um þróun verðlags á olíumarkaði. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að þar á bæ hafi mönnum að undanförnu borist ábendingar frá samtökum neytenda og fleiri aðilum vegna þróunar á eldsneytisverði.

„Bent hefur verið á að smásöluverð á bifreiða- og vélaeldsneyti hafi ekki fylgt að fullu nýlegum lækkunum á heimsmarkaðsverði á hráolíu eða innflutningsverði á eldsneyti. Þar af leiðandi hafi álagning í olíuverslun farið hækkandi síðustu mánuði," segir í tilkynningunni.

„Þau olíufélaganna sem hafa svarað ofangreindum ásökunum hafa dregið þær í efa, ella skýrt aukna álagningu með hækkun rekstrarkostnaðar. Þar sem hér er um að ræða brýnt hagsmunamál fyrir almenning og skoðanir eru mjög skiptar um staðreyndir og skýringar telur ráðuneytið nauðsynlegt að skýrara ljósi verði varpað á staðreyndir málsins," segir einnig og bætt við: „Af þessu tilefni hefur viðskiptaráðherra óskað eftir upplýsingum um þróun verðlags á olíumarkaði frá Samkeppniseftirlitinu og Neytendastofu."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×