Handbært fé ríkissjóðs minnkar um meir en helming 30. október 2008 14:17
Samkvæmt greiðsluuppgjöri ríkisins fyrstu níu mánuði ársins er handbært fé frá rekstri 19,2 milljarðar kr. innan ársins samanborið við 48,6 milljarða kr. á sama tímabili í fyrra. Innheimtar tekjur voru 11,6 milljarða kr. hærri en á árinu 2007 en gjöldin voru 49,9 milljarða kr. hærri nú en í fyrra. Hreinn lánsfjárjöfnuður er jákvæður um 27,7 milljarðar kr. sem er 45,6 milljarða kr. betri útkoma en í fyrra. Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 332 milljarða kr. á fyrstu níu mánuðum ársins sem er 3,6% aukning að nafnvirði. Skatttekjur og tryggingagjöld námu 302 milljarða kr. sem samsvarar 3,6% aukningu að nafnvirði á milli ára. Frá ársbyrjun hafa veltuskattar skilað ríkissjóði 141 milljarða kr. og dregist lítillega saman að nafnvirði frá sama tíma árið áður. Þegar horft er á 6 mánaða hlaupandi meðaltal nemur raunlækkun veltuskatta nú 15,8% á milli ára sem er mesta raunlækkun um árabil. Þetta er enn ein vísbending um að dregið hefur verulega úr umsvifum í hagkerfinu. Greidd gjöld nema 318,6 milljörðum kr. Mest aukning er vegna almannatrygginga- og velferðarmála, 14,3 milljarða kr. Þar munar mest um lífeyristryggingar sem hækka um 9 milljarða kr. á milli ára, fæðingarorlofsgreiðslur um 1,2 milljarða kr. og vaxtabætur um 1,4 milljarða kr.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira