Samskip ekki á leið úr landi 30. október 2008 11:38
Ekki er verið að flytja til neina starfsemi Samskipa á Íslandi og höfuðstöðvar Samskipa hf. eru og verða áfram hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í framhaldi af fréttum í morgun þar sem talað var um að Samskip hefðu flutt höfuðstöðvar sínar til Rotterdam í Hollandi. Félagið ákvað þó að fækka skipum hér á landi úr fjórum í þrjú og í kjölfarið fækkaði starfsfólki. „Eignarhaldsfélagið Samskip BV er skráð í Hollandi og hefur verið það síðan í lok síðasta árs," segir í tilkynningu frá Samskipum. „Eignarhaldsfélagið Samskip BV er móðurfélag Samskipa hf., sem er skráð félag á Íslandi, Samskip Multimodal Container Logistics BV, sem er skráð félag í Hollandi, og Samskip Logistics BV, sem einnig er skráð félag í Hollandi. Mörg fleiri dótturfélög, sem skráð eru víðsvegar um heiminn, tilheyra starfsemi Samskipa." Þá segir að með auknum umsvifum Samskipa á heimsvísu hefur hlutur Samskipa á Íslandi eðlilega farið minnkandi í heildarstarfseminni. „Það skýrist hins vegar fyrst og fremst af auknum umsvifum erlendis en ekki minnkandi starfsemi hér heima. Þvert á móti hefur markaðshlutdeild Samskipa vaxið jafnt og þétt á Íslandi og starfsemi félagsins verið blómleg. Samdráttur hefur hins vegar verið fyrirsjáanlegur á Íslandi og því var gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða innan félagsins fyrr á árinu til að mæta minni tekjum." „Þeir atburðir sem síðan urðu - og engan óraði fyrir - hafa hins vegar leitt til þess að Samskip þurfa að draga meira saman seglin. Þær aðgerðir sem nú verður gripið til fela í sér að siglingaáætlun félagsins verður breytt. Farið verður í 3ja skipa kerfi í stað 4ra skipa kerfis áður. Jafnframt hefur starfsfólki verið fækkað," segir ennfremur og því bætt við að stjórnendur Samskipa vonist til að „íslenska þjóðin verði ekki lengi niðri í þessum öldudal og bráðlega blasi við betri tímar með hagsæld öllum til handa."
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira