Einkunnirnar hrapa Óli Kristján Ármannsson skrifar 10. október 2008 18:00 Forsvarsmenn stærsta banka landsins, Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson hjá Kaupþingi, svara spurningum fréttamanna við Stjórnarráðið fyrr í vikunni. Fréttablaðið/Stefán
Alþjóðleg matsfyrirtæki hafa í vikunni ítrekað lækkað lánshæfiseinkunnir bæði ríkissjóðs og bankanna. Fyrst eftir að tilkynnt var um aðkomu ríkisins að Glitni síðasta mánudagsmorgun og svo eftir aðgerðir í kjölfar nýrra laga sem heimiluðu inngrip Fjármálaeftirlits í rekstur fjármálafyrirtækja. Í gær færði japanska matsfyrirtækið R&I Rating lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir erlendar skuldbindingar í BBB- úr A+, með möguleika á frekari lækkun. Ákvörðunin kom í kjölfar þess að ríkið hefur tekið yfir Kaupþing, Landsbankann og Glitni. Deginum áður lækkuðu einkunnir ríkisins og Íbúðalánasjóðs hjá bæði Fitch og Moody‘s. Bæði fyrirtækin hafa einkunnirnar áfram í skoðun með mögulega lækkun í huga. Einkunnir Glitnis og Landsbankans náðu einnig nýjum lægðum í gær þegar Fitch setti bankana í flokk gjaldþrota fyrirtækja, með einkunnina D, en hún var áður B hjá báðum. Kaupþing var jafnframt á aðfaranótt fimmtudags lækkað í einkunnina CCC hjá Fitch. Sambærileg lækkun hefur einnig átt sér stað af hálfu Standard & Poor‘s og Moody‘s. Þá lækkaði Fitch á þriðjudag lánshæfiseinkunnir Straums-Burðaráss eftir kaup Straums á erlendri fjárfestingarbankastarfsemi Landsbankans. Langtímaeinkunn Straums fór í BB- úr BB+ og horfur sagðar í athugun.
Mest lesið Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Sjá meira