Grunnur lagður að sterkara fyrirtæki Óli Kristján Ármannsson skrifar 23. september 2008 18:00 Ragnar Z. Guðjónsson „
Ætla má að samanlagt markaðsverðmæti Glitnis og Byrs sé um 281 milljarður króna. Markaðsvirði Glitnis er um 223 milljarðar en Capacent ráðgjöf mat Byr á 58,2 milljarða króna við breytingu í hlutafélag,“ segir í hálffimmfréttum greiningardeildar Kaupþings. Formlega var upplýst um samrunaviðræður Glitnis og Byrs í tilkynningu til Kauphallar í gær. Fram kemur að stjórnir félaganna hafi skuldbundið sig til að ræða ekki við aðra aðila um samstarf eða sameiningar á meðan þessar viðræður standi yfir. Niðurstaða á að liggja skjótt fyrir. Í tilkynningu fyrirtækjanna er haft eftir Lárusi Welding, forstjóra Glitnis, að með viðræðunum sé kannaður grundvöllur fyrir sameiningu. „Náist niðurstaða sem báðum er að skapi, er lagður grunnur að enn sterkara fyrirtæki sem er vel í stakk búið til að athafna sig í því árferði sem nú ríkir á markaði.“ Þá er haft eftir Ragnari Z. Guðjónssyni, sparisjóðsstjóra Byrs, að félagið standi sterkt þrátt fyrir ágjöf síðustu mánaða. Stjórn félagsins hafi skoðað vandlega þá kosti sem í stöðunni væru og telji að styrkur Byrs verði best nýttur í samstarfi við öflugt fyrirtæki á íslenskum og alþjóðlegum fjármálamörkuðum.Lárus Welding
Mest lesið Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Tveggja ára skjár fæst ekki bættur vegna „dauðs depils“ Neytendur Segir mun á launum stjórnarmanna sláandi Atvinnulíf Hrefna stýrir Attentus Viðskipti innlent „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Viðskipti innlent SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda Viðskipti innlent Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Viðskipti innlent Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Viðskipti innlent Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Sjá meira