Viðskipti innlent

Heildarskuldir heimila við bankakerfi nærri 900 milljarðar

MYND/Vilhelm

Skuldir heimila jukust um 3,5 prósent í janúar samkvæmt tölum um útlán innlánsstofnana frá Seðlabanka Íslands.

Það jafngildir því að skuldir heimila hafi aukist um rúmlega 29 milljarða króna milli mánaða sem er ríflega tvöföld sú aukning sem varð í síðasta mánuði. Heildarskuldir heimila við bankakerfi standa því nú í 867 milljörðum króna eftir því sem segir í Hálffimmfréttum Kaupþings.

Þar segir einnig að hlutdeild erlendra lána haldi áfram að vaxa og stendur nú í rúmlega 18 prósentum af heildarskuldum heimila. „Gengisbundin lán bera gengisáhættu og stækkar höfuðstóllinn því við veikingu krónunnar. Því hefur hin mikla aukning síðasta mánaðar að einhverju leyti átt rætur sínar að rekja til þess að krónan veiktist um 3,5% milli mánaða. Samhliða því sem hlutdeild erlendra skulda fer hækkandi dregur úr hlutdeild verðtryggðra lána sem í dag nema rétt um 68%," segir greiningardeild Kaupþings.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×