Ólíklegt að hluthafar fái skaðabætur vegna meintra bókhaldssvika 15. september 2008 18:39
Ólíklegt er að hluthafar í Eimskipafélaginu geti gert kröfu um skaðabætur vegna meintra bókhaldssvika Excel Airways, sem síðar varð XL Leisure Group. Fjármálaeftirlitið rannsakaði ábendingar þess efnis á síðasta ári án þess að finna göng sem kölluðu á frekari aðgerðir. Skýrt var frá því í fréttum í gær að endurkoðunarfyrirtækið KPMG í Bretlandi sætti sig ekki við að excel airways, sem síðar varð XL leisure group, seinkaði stórri greiðslu til þjónustuaðila í flugveitingum og rifti því samningi sínum við félagið. Bókhaldið hafi þar með verið fegrað áður en tilkynnt var að Avion group, móðurfélag XL, sem nú heitir Eimskip yrði skráð á markað í byrjun árs 2006. Í kjölfarið skoðaði fjármálaeftirlitið meint bókhaldsbrot XL og snéri athugunin að vitneskju eða aðkomu Avion að málinu. Leitað var eftir samvinnu breska fjármálaeftirlitsins og lauk athuguninni í lok síðasta árs þar sem ekki komu fram gögn í málinu sem sýndu fram á vitneskju stjórnenda Avion um málið né að þeir hefðu haft áhrif á framkvæmd samningagerðarinnar. Fjármálaeftirlitið segir að ef nýjar vísbendingar komi fram varðandi þetta mál verða þær skoðaðar. Komi fram ný gögn koma í málinu sem benda til þess að stjórn Avion hafi vitað af málinu gætu kaupendur á hlutabréfum í Avion átt skaðabótarétta gegn fyrirtækinu. Fréttastofa reyndi að ná samtali af Baldri Guðnasyni fyrrverandi forstjóra Eimskips og Magnúsi Þorsteinssyni, fyrrverandi stjórnarformann Avion án árangurs. Þá báðust Prófessorar við lagadeild háskóla Íslands og Fjármálaeftirlitið undan viðtölum. Gengi bréfa í Eimskip féllu um 21 prósent í dag. Frá áramótum hefur gengið fallið um rúm 80 prósent. En það þýðir að markaðsvirði félagsins hefur rýrnað um fjóra fimmtu frá áramótum. Björgólfsfeðgar, sem nýlegar gengu í ábyrgð á 27 milljarða króna láni sem féll á Eimskip við gjaldþrot xl, vildu ekki tjá sig um þá stöðu sem upp er komin í félaginu.
Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Fleiri fréttir Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Sjá meira