Stundaglasið tæmdist með Glitni Óli Kristján Ármannsson skrifar 15. október 2008 18:00 ólafur Ísleifsson, lektor við HR
Tjón vegna falls bankanna nemur að minnsta kosti 10 milljónum króna á hvern einasta landsmann, segir Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur í grein sem hann skrifar í Markaðinn. Hann segir tjón á mann líklega mun meira. „Ætla má að beint tjón Íslendinga af þeim viðburðum sem hér hafa verið raktir hlaupi á þúsundum milljarða króna. Verðmæti hlutafjár bankanna nam um 800 milljörðum króna. Þar liggur þó aðeins hluti tjónsins,“ segir hann. Ólafur leitast við að svara spurningunni um hvort hægt hefði verið að forða falli bankanna, en segir því tæpast verða svarað með vissu. „En líkindi má telja til þess að önnur afgreiðsla á máli Glitnis hefði gefið bönkunum svigrúm til að mæta lausafjárþurrðinni, hugsanlega nógu lengi til að komast í það skjól sem vænta má af samræmdum alþjóðlegum aðgerðum til stuðnings fjármálakerfinu,“ segir hann í greinni. „Kannski var þetta spurning um tvær eða þrjár vikur. Við því fæst ekki svar héðan af. Afgreiðslan á erindi Glitnis tæmdi stundaglasið.“ Þá segir hann ekki þurfa að fara í neinar grafgötur um að staða Kaupþings, sem framan af voru ekki öll sund lokuð, hafi „breyst til hins verra að kvöldi þriðjudagsins 7. október þegar bankastjóri Seðlabankans lét í viðtali falla ummæli sem Richard Portes, prófessor við London Business School, segir hafa verið túlkuð svo að að ríkissjóður myndi ekki efna skuldbindingar sínar gagnvart breskum sparifjáreigendum. Auk þess var ítrekað tekið fram að fyrirgreiðsla Seðlabankans við Kaupþing væri til mjög skamms tíma og þannig gefið til kynna að bankinn stæði afar tæpt. Daginn eftir lækkaði Moody‘s lánshæfiseinkunn ríkissjóðs um þrjú þrep, heilan flokk.“Sjá frekari umfjöllun í Markaðnum í dag
Mest lesið Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólgja hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Sjá meira