Auður Capital vill ræða um kaup á Sparisjóði Kaupþings 15. október 2008 10:50 Halla Tómasdóttir og Kristín Pétursdóttir, stjórnarformaður og forstjóri Auðar Capital.
Auður Capital hefur sent formlegt erindi til Fjármálaeftirlitsins og skilanefndar Kaupþings þar sem óskað er eftir viðræðum um kaup á Sparisjóði Kaupþings sem er dótturfélag Kaupþings banka. Fram kemur í tilkynningu frá Auði Capital að félagið hafi leyfi til að starfa sem verðbréfafyrirtæki og að það sé óháð, með dreifða eignaraðild og öflugt og reynslumikið stjórnendateymi. Fjárhagsstaða Auðar sé sterk enda sé félagið alfarið fjármagnað með eigin fé. Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, segir að Sparisjóður Kaupþings hafi orðið til við kaup Kaupþings á Sparisjóði Önundarfjarðar snemma á öldinni og hann hafi verið í eigu Kaupþings æ síðan. Starfsemi hans sé í Reykjavík. Kristín segir sparisjóðinn áhugaverðan fjárfestingarkost og forsvarsmenn Auðar telji að fjármálafyrirtæki sem hafi aðrar og heilbrigðari áherslur eigi erindi inn á markaðinn. Auður sé nú verðbréfafyrirtæki en vilji auka þjónustuframboð sitt. „Við teljum að fyrirtæki eins og Auður með okkar nálgun, sem kalla má mannlegt fjármálafyrirtæki sem hefur áhættumeðvitund og langtímamarkmið að leiðarljósi, eigi erindi inn á markað," segir Kristín. Aðspurð hvort Auður Capital hyggi á viðskiptabankastarfsemi segir Kristín að það megi vel vera að fyrirtækið útvíkki starfsemina. Það að fara inn í einingu eins og Sparisjóð Kaupþings opni ýmsa möguleika. Þá telji forsvarsmenn Auðar að nýju ástandi, eins og nú, fylgi alltaf möguleikar en verið sé að skoða þá. Kristín tekur skýrt fram að ekkert sé enn ákveðið og enn eigi eftir að fá svar frá stjórnvöldum um hvort þau fallist á viðræður.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira