Verulega hefur dregið úr neyslu íslenskra heimila 16. september 2008 11:12
Verulega hefur dregið úr neyslu íslenskra heimila að undanförnu. Velta debetkorta í innlendri verslun að viðbættri kreditkortaveltu dróst saman um 14% í ágúst frá sama mánuði í fyrra, ef veltan er raunvirt með vísitölu neysluverðs án húsnæðis og gengisvísitölu, og fyrirtækjakort frátalin. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að íslensk heimili rifa nú seglin í neyslu sinni enda hefur kaupmáttur skroppið saman, greiðslubyrði lána aukist, aðgangur að lánsfé versnað og horfur í efnahags- og atvinnulífinu dökknað verulega það sem af er ári. Þessi þróun endurspeglast í tölum um greiðslukortaveltu sem Seðlabankinn birti í gær. Þetta er fjórði samfelldi mánuður sem raunvirt greiðslukortavelta dregst saman en viðsnúningur hófst í maí síðastliðnum. Hinsvegar var enn góður vöxtur á fyrstu fjórum mánuðum ársins en þá jókst veltan um 7% að meðaltali. Tölur Seðlabankans um greiðslukortaveltu gefa sterka vísbendingu um þróun einkaneyslu en samkvæmt tölum Hagstofunnar dróst einkaneysla saman um 3% á 2. ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra. Raunvirt greiðslukortavelta minnkaði á sama tíma um 4,5%. Síðan segir í Morgunkorni: „Ef marka má greiðslukortaveltu í júlí og ágúst má búast við að einkaneysla dragist talsvert meira saman á 3. ársfjórðungi. Þessi þróun er í samdæmi við væntingar okkar en við eigum von á von á að frekari samdráttur verði í einkaneyslu það sem eftir lifir þessa árs og á því næsta."
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira