Flýta viðræðum um samruna bankanna Óli Kristján Ármannsson og Björn Ingi Hrafnsson skrifar 16. september 2008 04:00
Erfiðleikar í rekstri margra af stærstu fjármálafyrirtækjum heims eru líklegir til að flýta fyrir því sem ýmsir telja nauðsynlegan samruna íslenskra fjármálafyrirtækja. Markaðurinn hefur heimildir fyrir því að töluverður gangur sé kominn í samrunaviðræður Glitnis og sparisjóðsins Byrs, sem nýlega var breytt í hlutafélag. Þá er einnig til alvarlegrar skoðunar meðal stórra eigenda í Landsbankanum og Straumi að félögin tvö gangi í eina sæng á næstu dögum eða vikum. Samkeppniseftirlitið hefur samruna Kaupþings og SPRON enn til skoðunar og hefur haft um nokkurt skeið. Heimildir Markaðarins herma að óánægja sé með það hversu lengi sú skoðun hefur tekið, því öll óvissa sé óþægileg á viðkvæmum tímum. Einn heimildarmanna Markaðarins bendir á að samruni risafyrirtækjanna Bank of America og Merryl Lynch hafi verið keyrður í gegn á 48 klukkustundum og án athugasemda frá eftirlitsstofnunum. Hér taki það hins vegar margar vikur að fá skorið úr miklu smærri málum. Slíkar tafir geti verið afar kostnaðarsamar. Búist er við að Fjármálaeftirlitið leggi blessun sína yfir hlutafjárvæðingu Byrs í þessari viku. Eigendur sparisjóðsins hafa átt í óformlegum viðræðum við stærstu hluthafa í Glitni um samruna og munu þær viðræður vera langt komnar. Mikil tengsl eru milli stærstu hluthafa í Landsbankanum og fjárfestingabankanum Straumi. Björgólfur Guðmundsson er formaður bankaráðs Landsbankans, en sonur hans Björgólfur Thor er stjórnarformaður Straums. Bæði félögin sjá fram á auknar afskriftir, meðal annars vegna málefna Eimskipafélagsins, og er talið að sameinað félag yrði mun sterkara á eftir, með ágætt eiginfjárhlutfall og dreifðari áhættu. Heimildarmenn Markaðarins segja að mikið verði um samruna á fjármálamarkaði á næstu dögum og vikum. Það sé einnig alþjóðleg þróun, því víða hafi lokast á aðgengi að fjármagni og það bitni einkum á smærri fjármálafyrirtækjum, til dæmis sparisjóðunum.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira