Guðmundur staðfestir viðræður við GOG 14. desember 2008 17:17 Guðmundur Guðmundsson Mynd/Hari
Danska handboltafélagið GOG hefur sett sig í samband við íslenska landsliðsþjálfarann Guðmund Guðmundsson með það fyrir augum að taka við þjálfun liðsins á næstu leiktíð. Guðmundur staðfesti þetta í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í dag en danska daglaðið BT greindi fyrst frá þessu í gærkvöld. Í frétt blaðsins segir að Guðmundur muni taka við liðinu næsta sumar af Ulf Schefvert sem ætlar að taka við kennaliði félagsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 hafa lið í Þýskalandi einnig horft til Guðmundar í ljósi árangurs hans með íslenska landsliðið á ólympíuleikunum. Guðmundur segir viðræðurnar við GOG á algerum byrjunarreit og í raun allt of snemmt að tjá sig nokkuð um þær, hann hafi ekki rætt málið af það mikilli alvöru við danska félagið. Guðmundur segir fulldjúpt í árina tekið með að halda því beinlínis fram að hann verði þjálfari liðsins næsta sumar eins og BT gerir í frétt sinni. Aðspurður um hvort hann myndi stýra íslenska landsliðinu samhliða þjálfun félagsliðs í Evrópu, sagði Guðmundur að það yrði eitthvað sem hann myndi skoða ef til þess kæmi. Með GOG leika tveir íslenskir landsliðsmenn, þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Ásgeir Hallgrímsson.
Handbolti Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Íslenski boltinn Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira