Ísland sagt á barmi þjóðargjaldþrots og IMF að taka við stjórninni 8. október 2008 14:03
Í grein á business.dk er nú sagt að Ísland sé á barmi þjóðargjaldþrots og að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) sé um það bil að taka við stjórn landsins. Þá segir einnig að norrænar ríkisstjórnir muni halda að sér höndunum með fjárhagsaðstoð eins og staðan er í augnablikinu. "Ein af ríkustu þjóðum í heimi er í frjálsu falli efnahagslega. Gífurleg en ekki óvænt niðursveifla ógnar landinu eftir áratug í lúxus á fyrsta farými með lánuðum peningum," segir m.a. í greininni. Meðal þeirra sem rætt er við er Lars Christensen forstöðumann greiningar Danske Bank. Sagt er að hann hafi séð fyrir þessa erfiðleika þegar árið 2006. "Þróunin á síðustu dögum staðfestir. því miður, alltof augljóslega þessa döpru spá mína," segir Christensen í samtali við business.dk. "Staðan er mjög óljós en við erum með það á hreinu að íslenska ríkisstjórnin geti ekki leyst þessi vandamál án utanaðkomandi aðstoðar, án hjálpar frá IMF," segir hann ennfremur. Bjarke Roed-Frederiksen hjá greiningu Nordea er sammála þessu mati Christensen. Hann skrifar á vefsíðu sinni "Iceland Update" að erfitt sé að sjá að Ísland komist hjá því að taka IMF-kúrinn. IMF hafi raunar þegar sent menn til Íslands til að kanna umfang skaðans. Frederiksen segir jafnframt að Nils Bernstein seðlabankastjóri Danmerkur hafi verið í sambandi við kollega sinn í Seðlabanka Íslands. En Danir hafi einfaldlega ekki afl til þess að leysa vandamálin. Það geti verið skýringin á því að danska stjórnin hafi haldið að sér höndunum með að nota skattpeninga þegna sinna í björgunarpakka til íslensks efnahagslífs. Lars Christensen á heldur ekki von á að norrænu löndin muni veita Íslandi efnahagsaðstoð af stærri gerðinni. Greininni í business.dk lýkur á þessum orðum: "Nákvæmlega til hvaða læknisaðgerða IMF muni grípa er óvíst í augnablikinu en það mun koma verulega við kaunin á almennum Íslendingum og mun í fyrstu ganga út á að skera niður skuldirnar."
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira