Ekkert stórmál að leysa ágreining um Icesave fyrir dómstólum 8. október 2008 18:38
Forsætisráðherra segir ekkert stórmál að leysa ágreining við bresk stjórnvöld um tryggingu fyrir innlánun Icesave reikninga Landsbankans fyrir dómsstólum. Viðskiptaráðherra segir að Icesave reikningar í Bretlandi og Hollandi hafi verið starfræktir í skjóli EES-samningsins og menn hafi reist sér hurðarás um öxl. Reikningum Icesave var lokað í upphafi vikunnar bæði í Bretlandi og Hollandi og þeir sem töldu að tekist hefði að millifæra með herkjum í þessari viku, var tjáð í morgun að allar millifærslur frá mánudegi myndu ganga til baka. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Alistair Darling fjármálaráðherra, sögðu á blaðamannafundi í morgun að íslensk stjórnvöld hefðu greint þeim frá því að ekki væri ætlunin að ábyrgjast inneignir 300 þúsund breskra sparifjáreigenda í Icesave, netbanka Landsbankans í Bretlandi. Brown fullvissaði fólk um að breska stjórnin myndi tryggja innistæðurnar og að mál yrði höfðað á hendur íslenska ríkinu vegna þessa. Í erlendum fréttamiðlum er talið að ábyrgð íslenska ríkisins í Bretlandi gæti numið allt að fimm milljörðum punda, jafnvirði um þúsund milljarða íslenskra króna miðað við gengi Seðlabankans í dag, sem eru um tvöfaldar tekjur ríkissjóðs samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. Málefni Icesave eru á forsíðu netútgáfu stærstu fjölmiðla í Hollandi en þar eiga um 120 þúsund sparifjáreigendur inneignir að jafnvirði um tæplega þrjú hundruð milljarða íslenskra króna, sem er ríflega helmingur af tekjum íslenska ríkisins næsta ár.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira