Kaupmáttarskerðing ekki meiri síðan þjóðarsáttin komst á 22. október 2008 11:19 MYND/Páll
Sú kaupmáttarskerðing sem íslenskir launaþegar hafa orðið fyrir undanfarna 12 mánuði á ekki sinn líka frá því stöðnunarskeið gekk yfir hagkerfið í kjölfar þjóðarsáttarinnar í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir ennfremur að horfur séu hinsvegar á því að kaupmáttarskerðingin verði talsvert meiri nú en þá þar sem framtíðin á vinnumarkaðinum er dökk og talsverð verðbólgan framundan. „Laun samkvæmt launavísitölu Hagstofunnar hækkuðu um 0,5% í september. Samkvæmt frétt Hagstofunnar hafa nýgerðir kjarasamningar við opinbera starfsmenn og hækkun launa þeirra hópa sem heyra undir Kjararáð áhrif til hækkunar vísitölunnar nú. Launaskrið á almennum markaði virðist því hverfandi þessa dagana, sem ætti ekki að koma á óvart í ljósi ört versnandi stöðu á vinnumarkaði, líkt og í þjóðarbúinu í heild. Þrátt fyrir 9% hækkun launavísitölunnar undanfarið ár hefur kaupmáttur launa dregist saman um tæp 5%, ef miðað er við þróun vísitölu neysluverðs. Kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna, að frádregnum skattgreiðslum og fjármagnskostnaði, hefur svo væntanlega dregist enn meira saman þrátt fyrir lækkun tekjuskatthlutfalls um 1% í ársbyrjun. Þessu veldur ekki síst aukin greiðslubyrði af gengistryggðum lánum. Gengistryggð lán námu tæpum 13% af heildarskuldum heimilanna um mitt ár, og miðað við gengisþróun síðan má ætla að greiðslubyrði þessara lána hafi aukist um allt að fjórðung síðan þá. Útlit er fyrir talsverða hækkun neysluverðlags á komandi mánuðum. Útlit á vinnumarkaði er ekki bjart um þessar mundir og verður launaskrið trúlega í lágmarki næstu misseri," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Sjá meira