Vill aðstoð IMF til að lágmarka skaðann 14. október 2008 13:00
Inn- og útflutningur er í uppnámi segir Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur. Hún vill hjálp frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hið fyrsta til að koma í veg fyrir að skaðinn verði meiri en hann er orðinn. Edda Rós segir að almennt vantraust ríki á viðskiptum banka á milli, sérstaklega gagnvart Íslandi. Það geti haft alvarlegar afleiðingar á inn- og útflutning. „Til skemmri tíma litið getur þetta valdið því að fyrirtækin hreinlega lendi í einhvers konar þroti þrátt fyrir að þau séu vel rekin og hafi staðið í skilum með allt sitt. En til lengri tíma þýðir þetta í raun að við gætum verið að missa markaði erlendis þar sem við erum búin að koma okkur fyrir, t.d. með hágæðafiskvörum, og gætum lent í þeirri stöðu í framhaldinu að vera að selja þá á lágverðsmarkaði, einhvers konar blokkfisk eða eitthvað slíkt, þar sem afhendingaröryggi skiptir minna máli. Við erum þá að færast mjög aftur í tímann," segir Edda Rós. Hún telur afar mikilvægt að byggja upp traust að nýju til að koma í veg fyrir að skaðinn verði meiri en hann er nú þegar orðinn. „Það held ég að verði ekki gert nema með aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og vonandi einnig nágrannaríkja okkar. Svíþjóð, Noregur og reyndar Finnland líka hafa lent í fjármálakrpepu og unnið sig út úr þeim fljótt og vel. Ég held að aðkoma þessara aðila strax í dag gæti lágmarkað þann skaða sem enn er að gerast og það er afar mikilvægt að átta sig á því að þó að skaðinn sé þegar orðinn mikill þá getur hann enn orðið meiri," segir Edda Rós Karlsdóttir.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira