Viðskipti innlent

Samskip ekki á leið úr landi

Ekki er verið að flytja til neina starfsemi Samskipa á Íslandi og höfuðstöðvar Samskipa hf. eru og verða áfram hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í framhaldi af fréttum í morgun þar sem talað var um að Samskip hefðu flutt höfuðstöðvar sínar til Rotterdam í Hollandi. Félagið ákvað þó að fækka skipum hér á landi úr fjórum í þrjú og í kjölfarið fækkaði starfsfólki.

„Eignarhaldsfélagið Samskip BV er skráð í Hollandi og hefur verið það síðan í lok síðasta árs," segir í tilkynningu frá Samskipum. „Eignarhaldsfélagið Samskip BV er móðurfélag Samskipa hf., sem er skráð félag á Íslandi, Samskip Multimodal Container Logistics BV, sem er skráð félag í Hollandi, og Samskip Logistics BV, sem einnig er skráð félag í Hollandi. Mörg fleiri dótturfélög, sem skráð eru víðsvegar um heiminn, tilheyra starfsemi Samskipa."

Þá segir að með auknum umsvifum Samskipa á heimsvísu hefur hlutur Samskipa á Íslandi eðlilega farið minnkandi í heildarstarfseminni. „Það skýrist hins vegar fyrst og fremst af auknum umsvifum erlendis en ekki minnkandi starfsemi hér heima. Þvert á móti hefur markaðshlutdeild Samskipa vaxið jafnt og þétt á Íslandi og starfsemi félagsins verið blómleg. Samdráttur hefur hins vegar verið fyrirsjáanlegur á Íslandi og því var gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða innan félagsins fyrr á árinu til að mæta minni tekjum."

„Þeir atburðir sem síðan urðu - og engan óraði fyrir - hafa hins vegar leitt til þess að Samskip þurfa að draga meira saman seglin. Þær aðgerðir sem nú verður gripið til fela í sér að siglingaáætlun félagsins verður breytt. Farið verður í 3ja skipa kerfi í stað 4ra skipa kerfis áður. Jafnframt hefur starfsfólki verið fækkað," segir ennfremur og því bætt við að stjórnendur Samskipa vonist til að „íslenska þjóðin verði ekki lengi niðri í þessum öldudal og bráðlega blasi við betri tímar með hagsæld öllum til handa."
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×