Skítastaða áfram í gjaldeyrismálum - Ögurvík hættir sölu til Bretlands 27. október 2008 11:02
Svo virðist sem erlendir bankar ætli að bíða eftir formlegu samkomulagi Alþjóðgjaldeyrissjóðsins. Áfram er skítastaða í gjaldeyrisviðskiptunum að sögn Arnars Sigurmundssonar, formanns Samtaka fiskvinnslustöðva. Ögurvík er hætt að selja fisk til Bretlands meðan ástandið varir. Indriði Ívarsson, sölustjóri Ögurvíkur, segir að greinilegt sé að erlendir bankar ætli að halda að sér höndum þar til formlegt samkomulag er komið á milli Íslands og IMF. ,,Á meðan erum við í pattstöðu," segir Indriði.,,Við höfum stoppað alla sölu til Bretlands meðan ástandið varir en getum enn selt til Asíu." Arnar Sigurmundsson bendir á að ruglið í gjaldeyrisviðskiptunum komi mismunandi niður á útflutningsfyrirtækjunum. ,,Vandinn er sá að þessi gjaldeyrisviðskipti hafa verið mjög fljót og skilvirk hér á landi svo áratugum skiptir," segir Arnar. ,,Þegar kerfið fer svo í stopp er slíkt fljótt að bíta í hjá okkar fólki." Arnar segir að bankahrunið hafi því verið eins og að lenda á vegg fyrir fiskvinnsluna. Og nú hafi ástandið varað í 3-4 vikur. ,,Bretland er langerfiðasta vandamálið sem við glímum við í dag," segir Arnar. ,,Það er ekki aðeins að afurðasalan til Bretlands vegur þungt, eða 27% af heildinni, heldur hefur London verið fjármálamiðstöð fyrir marga sem selja afurðir sínar í öðrum Evrópulöndum." Hvað aðgerðir varðar segir Arnar að þeir séu með fulltrúa í aðgerðarhópum Samtaka atvinnulífsins en þeir funda nú daglega um stöðu mála. ,,Við erum líka í góðu sambandi við okkar félagsmenn og upplýsum þá um stöðuna eins og hægt er," segir Arnar.
Mest lesið Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Sjá meira