Viðskipti innlent

FME fær auknar heimildir til að banna skortsölu

Í viðskiptaráðuneytinu hefur verið ákveðið að gera breytingar á reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik sem miða að því að styrkja heimildir Fjármálaeftirlitsins til að setja skorður eða banna skortsölu.

„Viðskiptaráðuneytið hefur ákveðið að gera breytingar á reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik sem miðar að því að styrkja heimildir Fjármálaeftirlitsins til að skilgreina ákveðna hegðun andstæða viðurkenndri markaðsframkvæmd með tilliti til fjármálastöðugleika og aðstæðna á markaði," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

„Með þessari heimild er Fjármálaeftirlitinu veitt meira svigrúm en áður til að grípa til aðgerða gegn ákveðinni markaðsframkvæmd sem talist getur ógna fjármálastöðugleika eða haft skaðleg áhrif á virkni markaða með hlutabréf," segir ennfremur og því bætt við að með breytingunni sé meðal annars ætlunin að „styrkja heimildir Fjármálaeftirlitsins til að banna eða setja skorður við skortsölu hlutabréfa ef þær aðstæður koma upp að fjármálastöðugleika eða virkni markaða er ógnað af völdum skortsölu."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×