Þrjátíu milljónir til skiptanna Óli Kristján Ármannsson skrifar 24. september 2008 18:00 Hring lokað VSP varð til þegar starfsemin var keypt af Sparisjóði Hafnarfjarðar, sem síðar varð Byr. Byr keypti svo aftur reksturinn út úr VSP. Fréttablaðið/Stefán
Ólíklegt er að kröfur berist í bú Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna (VSP) sem nú er í slitameðferð, að sögn Erlu S. Árnadóttur lögmanns sem skipuð er skiptastjóri. „Innköllunarfrestur er í gangi, en hann var ákveðinn sex mánuðir.“ Hefðbundinn innköllunarfrestur er tveir mánuðir, en Erla kveðst hafa ákveðið að nýta heimild til framlengingar þar sem verið gæti að kröfur væru í búið erlendis. „Enn sem komið er hafa hins vegar engar kröfur borist.“ Erla segir því ekki útséð með að félagið sé gjaldþrota, þótt það sé að forminu til í gjaldþrotaskiptum. „Félagið á eignir á bankareikningi upp á 30 milljónir króna.“ Þótt VSP sé í slitameðferð er það ekki vegna þess að félagið standi ekki undir kröfum, heldur var starfsemi hætt eftir að Byr keypti rekstur þess undir lok síðasta árs. Til þess að slit geti farið fram kveða lögin á um að fram skuli fara gjaldþrotaskipti, að sögn Erlu. Verði eignir VSP til úthlutunar þá verður þeim úthlutað til hluthafa, en félagið var, líkt og nafnið gefur til kynna í eigu sparisjóðanna. Skiptafundur verður, samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingarblaðinu, um miðjan janúar næstkomandi. Líkast til verður þá einnig komið í ljós hvort ábyrgðir fyrir um 200 milljónir Bandaríkjadala verða bindandi fyrir VSP, en ríkissaksóknari telur að þær geti fallið á félagið. Í byrjun vikunnar var staðfestur í Hæstarétti farbannsúrskurður yfir fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins sem sakaður er um brot í starfi.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira