Því miður er Ísland ekki með í gjaldeyrisskiptasamningum 24. september 2008 15:24
Edda Rós Karlsdóttir forstöðumaður greiningar Landsbankans segir að því miður sé Íslandi ekki með í gjaldeyrisskiptasamningum eins og þeim sem Seðlabanki Bandaríkjanna hafi nú gert við hin Norðurlöndin og Ástralíu. „Gjaldeyrisskiptasamningarnir eru til þess fallnir að greiða fyrir virkni gjaldeyrismarkaða, styrkja fjármálastofnanir viðkomandi landa og styðja þar með við fjármálastöðugleika," segir Edda Rós. „Æskilegt væri að íslenski seðlabankinn gerði slika samninga við erlenda seðlabanka." Í nótt tilkynnti seðlabanki Bandaríkjanna að hann hefði gert gjaldeyrisskiptasamninga við seðlabanka Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Ástralíu til að auðvelda á ný skammtímafjármögnun í dollurum. Samningarnir, sem gilda til loka janúar á næsta, nema samtals 30 milljörðum dollara og þar af eiga fyrrgreind Norðurlönd aðgang að 20 milljörðum dollara eða hátt í 2.000 milljarða kr. Samhliða tilkynningu um samninginn boðaði danski seðlabankinn útboð á 28 daga lánum í bandaríkjadölum n.k. föstudag. Í þessu felst að þarlendir bankar fá aðgang að lausafé í bandaríkjadal gegn veðum í dönskum krónum, þ.e. veðum sem almennt gilda í endurhverfum viðskiptum danska seðlabankans. Ástralski og norski seðlabankinn hafa einnig tilkynnt um sambærileg útboð fyrir þarlenda banka, en sænski seðlabankinn segist fylgjast grannt með gjaldeyrismarkaði og að hann muni tryggja nægt framboð bandaríkjadals gerist þess þörf.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Sjá meira