Spyr afhverju Seðlabankinn getur ekki fylgt systurstofnunum 24. september 2008 16:37
Greining Kaupþings veltir því fyrir sér af hverju Seðlabanki Íslands getur ekki fylgt fordæmi systurstofnanna sinna. Alla alþjóðlega banka vantar í augnablikinu aðgang að dollurum og evrum og afhverju þyrfti það að vera túlkað neikvætt fyrir íslenska banka við núverandi aðstæður? Fjallað er um málið í Hálf fimm fréttum greiningarinnar í framhaldi af fréttum um gjaldeyrisskiptasamninga þá sem seðlabanki Bandaríkjanna hefur gert við seðlabanka á hinum Norðurlöndunum. Undir fyrirsögninni Hvar er Ísland? segir: „Ástæðan fyrir tilveru Seðlabanka er að tryggja lausafjárstöðu þess fjármálakerfis sem þeir hafa umsjón með. Sú skylda hlýtur einkum að ná til viðkomandi þjóðargjaldmiðils en við núverandi aðstæður - alþjóðlega fjármálakrísu - hlýtur skyldan einnig að ná til erlendra gjaldmiðla. Ljóst er að Seðlabanki Íslands gæti hæglega boðið upp á skammtímaskiptasamninga í evrum gegn íslenskum veðum til skamms tíma í senn - eins og bankar hafa í raun verið að gera óháð skiptasamningum við seðlabanka Bandaríkjanna." Segir greiningin að með því sé unnið að fjármálalegum stöðugleika sem á verulega undir högg að sækja en þeir markaðsbrestir sem eru uppi á gjaldeyrismarkaði hljóta að teljast til óstöðugleika. Þessi framkvæmd hefur ekki aukakostnað í för fyrir sér fyrir Seðlabankann þar sem uppboð færi fram og bankarnir fengju evrur í hendurnar á markaðskjörum. Ekki yrði gengið á gjaldeyrisvaraforðann þar sem Seðlabankinn fengi evrurnar aftur í hendur í lok samningstímans. Að vísu er alltaf einhver mótaðilaáhætta til staðar en hins vegar ber bankinn nú þegar þessa áhættu í endurhverfum viðskiptum við íslenska banka.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira