Spá stóraukinni greiðslubyrði lána Óli Kristján Ármannsson skrifar 24. september 2008 18:00 Edda Rós Karlsdóttir Bak við forstöðumann greiningardeildar Landsbankans sést þróun einkaneyslu hér á landi frá árinu 1945. Í rauðum lit er svo spá bankans um samdrátt um 12 prósent fram til 2012. Markaðurinn/GVA
Langtímahorfur í efnahagsmálum þjóðarinnar eru öfundsverðar, þótt þær séu nokkuð ögrandi til skemmri tíma, að því er fram kom hjá Eddu Rós Karlsdóttur, forstöðumanni greiningardeildar Landsbankans, á kynningu á hagspá greiningardeildarinnar fyrir árin 2008 til 2012 í gær. Um leið benti hún á að hér hefðum við auðlindir og burði til að takast á við skemmri tíma vanda. Í kynningu greiningardeildarinnar var hins vegar lögð áhersla á að hér væri nú að eiga sér stað nauðsynleg leiðrétting og samdráttur eftir mikinn uppgangstíma, ekki upphaf kreppu. Aðrar aðstæður, svo sem alþjóðleg lánsfjárkrísa, niðurskurður aflaheimilda og eldsneytis- og hrávöruverðshækkanir, geri aðlögun hagkerfisins hér vandasamari. Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, sérfræðingur greiningardeildarinnar sem einnig kynnti hagspá bankans, segir endurskoðun vaxta á íbúðalánum hefjast næsta haust, en á tímabilinu september 2009 til júní 2010 komi 5.500 lán til endurskoðunar. Hún segir að í spilunum sé stóraukin greiðslubyrði, eða allt að fimmtungshækkun. Um leið er spá mest u verðaðlögun á fasteignamarkaði hér frá því mælingar hófust, eða 10 prósenta lækkun fasteignaverðs að nafnvirði, þar til fasteignamarkaður taki við sér á ný á fyrri hluta 2010. Þá harðnar í ári á fleiri sviðum samkvæmt spá bankans, en gert er ráð fyrir að atvinnuleysi fari hér hæst í fjögur prósent á fyrsta fjórðungi 2011. „En við teljum heimilin hafa búið vel í haginn á liðnum árum og geti staðið af sér með glæsibrag það sem fram undan er,“ segir Kristrún Tinna. Hátt orkuverð, afhendingaröryggi og veik króna er sögð auka arðsemi stóriðjuverkefna. Á spátímabilinu er gert ráð fyrir verkefnum á borð við álveri í Helguvík, fyrsta áfanga Bakka, stækkun við Straumsvík, netþjónabúi í Keflavík og aflþynnuverksmiðju á Akureyri, samtals 440 milljörðum króna vegna iðju og orkuvera á næstu fimm árum. Áhrifin verði samt önnur en í nýliðinni uppsveiflu þar sem í stað ruðningsáhrifa verði þar fyllt í skarðið sem alþjóðleg fjármálakreppa skilur eftir sig. Krónan verður veik áfram samkvæmt spá Landsbankans, en lægðir hennar núna eru hins vegar sagðar öfgasveifla sem hljóti að ganga til baka. Gert er ráð fyrir gengisvísitölunni 160 í lok þessa árs og að jafnaði 155 á því næsta. Edda Rós áréttar þó að þessi spá sé mikilli óvissu háð, auk þess sem gert sé ráð fyrir miklum sveiflum á genginu. Spáð er fimm prósenta verðbólgu frá upphafi til loka næsta árs og að lækkun stýrivaxta hefjist undir lok fyrsta fjórðungs næsta árs. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, segir íslenska banka standa nokkuð vel í þrengingum alþjóðlegra fjármálamarkaða; þeir hafi gripið til nauðsynlegra aðgerða, auk þess sem þeir búi nú að áhættudreifingu í starfseminni eftir útrás síðustu ára. Þá segir hann horfur á að þegar losna taki um laust fé á ný á alþjóðavísu, aukist innstreymi þess hér, enda séum við á hagvaxtarsvæði þar sem innviðir séu sterkir. „Laust fé streymir þar sem tækifærin eru,“ segir hann.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira