Enska landsliðið fær harða útreið 3. febrúar 2008 16:59 Nordic Photos / Getty Images
Enska landsliðið í knattspyrnu féll með eftirminnilegum hætti út úr forkeppni EM í haust. Bjartsýni ríkir engu að síður í herbúðum Englendinga eftir ráðningu Fabio Capello, sem valdi sinn fyrsta 30 manna hóp fyrir helgi. Pistlahöfundur í breska blaðinu Daily Mail hefur ákveðið að koma þjóðinni vel niður á jörðina, því hann bjó til umsögn um alla 30 landsliðsmennina og þar er svo sannarlega ekki verið að fegra hlutina. Vísir birtir hér listann í lauslegri þýðingu. MARKVERÐIR: David James (Portsmouth) Miðlungsmarkvörður, en sá skársti sem við eigum. Stutt í næstu mistök. Úps. Scott Carson (Aston Villa) Miðlungsmarkvörður, en ekki sá besti. Stutt í næstu mistök. Úps. Chris Kirkland (Wigan) Miðlungsmarkvörður. Stutt í næstu meiðsli. Gerir þó ekki mistök af því hann verður meiddur. Úps. VARNARMENN: Wayne Bridge (Chelsea) Fabio, horfðirðu ekki á leikinn við Króatíu? Ashley Cole (Chelsea) Feginn að koma inn í landsliðið til að hvíla sig á skömmunum sem rigna yfir hann heima hjá sér. Curtis Davies (Villa) Segist hafa spilað eins og pöbbaleikmaður í fyrsta leiknum sínum með Villa. Fínt, sendum hann þá út á lífið með Chelsea-strákunum. Glen Johnson (Portsmouth) Átti þessi maður ekki einu sinni að geta dekkað Cristiano Ronaldo? Rio Ferdinand (Man Utd) Sér um að skipuleggja jólateitið Ledley King (Spurs) Ætlarðu að tilkynna meiðsli núna eða seinna? Jonathan Woodgate (Spurs) Ætlarðu að tilkynna meiðsli núna eða seinna? Nicky Shorey (Reading) Frá boltastrák til bakvarðar - og aftur til baka. Wes Brown (Man Utd) Bara í liðinu af því hann spilar með United. Varamaður lærlingsins sem er varamaður í stöðu hægri bakvarðar hjá landsliðinu. Joleon Lescott (Everton) Skorar meira en Michael Owen, en getur hann spilað vörn fyrir enska landsliðið? Micah Richards (Man City) Skrímsli sem kann ekki að spila vörn. Veljum hann samt. Besti skokkurinn í hópnum - ef þú fílar svoleiðis. Matthew Upson (West Ham) Hagnast á því að spila fyrir aftan leiðnlega fimm manna miðju West Ham. Sæmilegur leikmaður. Hvað er hann að gera hérna? MIÐJUMENN: Michael Carrick (Man Utd) Jafnfættur varamaður Manchester United með einn gír.Steven Gerrard (Liverpool) Leikmaður. Fleiri svona takk.Gareth Barry (Villa) Örvfættur og geðþekkur náungi. Hefur hraða á við kraminn íkorna en getur skilað frá sér bolta. Óvenjulegt fyrir enskan landsliðsmann.Jermaine Jenas (Spurs) Er að spila vel eftir að hafa verið sóun á plássi svo lengi. Alveg eins gott að gefa honum leik núna. Hann er þegar kominn með 17. Hver trúir því? Owen Hargreaves (Man Utd) Gleymdi hæfileikum sínum í Munchen þegar hann kom frá Þýskalandi. Komdu aftur seinna vinur. Kannski þegar þú ert búinn að ná að spila leik fyrir félagsliðið þitt. Joe Cole (Chelsea) Hann fær boltann, rekur hann og tapar honum. Ashley Young (Villa) Hægri fótar maður á vinstri kantinum. Af hverju fékk hann ekki séns hjá McClaren? Stewart Downing (Middlesbrough) Eini örvfætti vinstri vængmaðurinn á Englandi. Búinn að sanna að hann er ekki toppleikmaður. Best að velja hann samt. Shaun Wright-Phillips (Chelsea) Fljótur og er að bæta sig. Samt ekki nógu góður og ekki með nógu góðar sendingar. Af hverju var hann með flösku af Jack Daniels í buxnastrengnum þegar hann yfirgaf næturklúbb um helgina? David Bentley (Blackburn) Láttu hann spila. Hinn nýi D.B. FRAMHERJAR: Emile Heskey (Wigan) Stóri-Kláus. Og Dean Ashton fær ekki einu sinni leik hjá West Ham. Gabriel Agbonlahor (Villa) Fljótur, en er hann slúttari? Sennilega ekki enn. Fær ekki séns nema Owen ljúki endanlega keppni. Wayne Rooney (Man Utd) Veldu hann áður en hann fer aftur í bann aftur - um leið og við þurfum mest á honum að halda. Michael Owen (Newcastle) Valinn á fornri frægð. Hresstu þig við! Peter Crouch (Liverpool) Fær ekki einu sinni að spila hjá Liverpool. Fínt að velja hann. Hann er sá eini sem nær skýrslunum á efstu hillunni á skrifstofunni.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Viktor Gísli fékk silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira