„Stórt skref fram á við,“ segir forstjóri Straums 1. október 2008 09:47 Willam Fall, forstjóri Straums. MYND/GVA
Kaup Straums á erlendum eignum Landsbankans styrkja verulega starfsemi Straums á sviði fyrirtækjaráðgjafar og verðbréfamiðlunar í Evrópu. Hjá fyrirtækjunum sem um ræðir starfa alls um 680 manns í 9 Evrópulöndum auk Bandaríkjanna, sem þýðir að eftir kaupin starfa 1.200 starfsmenn í 18 löndum hjá Straumi dóttur- og hlutdeildarfélögum bankans. Í tilkynningu um málið segir að fyrirtækin þrjú, sem samkomulagið lýtur að, búa að traustum viðskiptasamböndum og stórum hópi viðskiptamanna í öllum helstu fjármálamiðstöðvum Evrópu. Rétt eins og Straumur hafa þau einkum einbeitt sér að meðalstórum fyrirtækjum og lagt áherslu á staðbundna þekkingu og ráðgjöf. Samanlagt munu greinendur hinnar nýju samstæðu veita ráðgjöf um fjárfestingar í yfir eitt þúsund evrópskum fyrirtækjum. Samanlagðar tekjur fyrirtækjanna þriggja sem keypt eru námu á síðasta ári 232 milljónum evra eða sem svarar til um 34 milljarða kr. eða rúmlega 4 milljörðum kr.. Samanlagður hagnaður þeirra fyrir skatt nam 30 milljónum evra. William Fall, forstjóri Straums segir í tilkynningu um málið að Straumur hefur með þessu nýtt einstakt tækifæri sem bauðst til að auka umsvif bankans verulega, hasla honum völl á sviði fjárfestingabankastarfsemi og verðbréfamiðlunar á öllum helstu mörkuðum Evrópu og auka jafnframt vægi þeirrar starfsemi sem snýr að þjónustu við viðskiptavini. „Þetta er stórt skref fram á við fyrir bankann og samrýmist þeirri stefnu okkar að leggja aukna áherslu á þóknunartekjur og draga úr vægi langtímalánveitinga og eigin viðskipta í rekstrinum. Við teljum mikil verðmæti í því fólgin að veita þjónustu á grundvelli staðbundinnar sérþekkingar og ljóst er að fyrirtækin sem um ræðir, sem öll eru þekkt og mikils metin á starfssvæðum sínum, efla okkur verulega að þessu leyti," segir William.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira