Danske Bank og Nordea loka fyrir millifærslur til Íslands 10. október 2008 11:32
Tveir stærstu bankar Danmerkur, Danske Bank og Nordea Bank, hafa tekið fyrir allar peningamillifærslur á milli Íslands og Danmerkur, hvort sem þær varða einstaklinga, fyrirtæki eða sjóði. Þá hafa verið erfiðleikar með að kortafærslur um danska kortafyrirtækið PBS komist til skila, en fjölmargar verslanir hér á landi eru í viðskiptum við það fyrirtæki. Frásögnum um erfiðleika og vandræði vegna þessa rignir yfir fréttastofuna. Kona, sem rekur verslun með PBS posa, hefur ekkert fengið greitt af vaxandi innistæðu sinni dögum saman. Fyrir bragðið er hún komin í vanskil með lán, sem nú er farið að safna á sig dráttarvöxtum, og svo á hún ekki lengur fyrir nýjum vörum. Eigandi útflutningsfyrirtækis fær ekki greitt fyrir framleiðslu sína, sem komin er til Danmerkur og kaupendur hafa reynt að greiða fyrir, en fá greiðsluna alltaf endursenda, með þeim orðum að bankarnir færi enga peninga til eða frá Íslandi hvers eðlis greiðslurnar eru. Íslenskur öryrki, sem staddur er í Danmörku, fær ekki örorkubæturnar yfirfærðar og er kominn í standandi vandræði, og svona mætti lengi telja. Einn viðmælandi sagði fréttastofunni að bankarnir bæru því við að kennitölur bankanna væru óljósar á Íslandi og það vantaði ábyrgðaryfirlýsingu frá Seðlabankanum til að óhætt væri að opna fyrir millifærslur, en slík yfirlýsing Seðlabankans léti á sér standa. Aðeins er tveir dagar frá því að Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi að borið hefði á hnökrum á erlendum viðskiptum íslenskra fyrirtækja. Seðlabankanum hefði verið falið að gera ráðstafanir að öll viðskipti gætu farið fram með eðlilegum hætti. Gengið yrði frá ábyrgðaryfirlýsingum til viðbótar yfirlýsingum viðskiptabanka. Seðlabankinn hefði jafnframt og myndi tryggja að strax eftir helgi yrðu öll venjuleg bankaviðskipti milli landa komin í eðlilegt horf.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið Sjá meira