Segir kröfu Stones Invest á hendur Landic Propery fáránlega 7. september 2008 14:35
Páll Benediktsson uplýsingafulltrúi Landic Property segir að krafa Stones Invest á hendur Landic fyrir fógetaréttinum í Kaupmannahöfn sé fáranleg. "Þetta eru einhverskonar taugaveiklunarviðbrögð við gjaldþrotakröfu okkar á hendur Stones Invest," segir Páll. Eins og fram kom í frétt hér á Vísi um helgina greindi blaðið Berlingske Tidende frá því að gjaldþrotabeiðni Landic byggir á kröfu um endurgreiðslu á virðisaukaskatti upp á 7,5 milljónir dkr. vegna byggingarframkvæmda í Holbæk. Landic telur að Stones Invest hafi haldið þessari upphæð eftir og að hún hefði með réttu átt að ganga til Landic. Ennfremur kom fram að Landic Property telur sig eiga allt að 140 milljónum dkr. inni hjá Stones Invest, eða sem svarar til um 2 milljarða kr. Páll Benediktsson segir að krafa Stones Invest á hendur Landic sé 30 milljónir dkr. og að hún sé vegna byggingarframkvæmda sem ekki séu hafnar enn. "Málið er að að Stones Invest átti að fá þessa fjárhæð frá okkur um leið og þeir hefðu gengið frá lóðakaupum undir bygginguna," segir Páll. "Þeir hafa hinsvegar enn ekki getað sýnt okkur fram á að þeir hafi keypt umrædda lóð og því héldum við að okkur höndum." Eins og fram hefur komið í dönskum fjölmiðlum rambar Stones Invest nú á barmi gjaldþrots. Því ákvað Landic að leggja fram gjaldþrotabeiðni til að tryggja hagsmuni sína. Páll telur að fyrrgreindur mótleikur Stones Investvið því sé einfaldlega tilraun Stones Invest til að halda andlitinu út á við.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira