Alfreð hafði betur gegn Guðjóni Val - Lövgren ótrúlegur Eiriíkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. september 2008 13:34 Guðjón Valur Sigurðsson tekur víti fyrir Rhein-Neckar Löwen. Nordic Photos / Bongarts
Alferð Gíslason og Guðjón Valur Sigurðsson mættust í dag í fyrsta sinn síðan þeir fóru báðir frá Gummersbach fyrir nýhafið tímabil. Guðjón Valur og félagar í Rhein-Neckar Löwen tóku á móti lærisveinum Alfreðs hjá Þýskalandsmeisturum Kiel sem höfðu betur í leiknum, 42-40. Stefan Lövgren átti hreint ótrúlegan dag og skoraði átján mörk í leiknum, þar af átta úr vítum. Guðjón Valur var markahæstur leikmanna RHL með níu mörk, þar af þrjú úr víti. Kiel virtist vera með unninn leik í höndunum en liðið hafði sex marka forystu, 37-31, þegar tólf mínútur voru eftir. Heimamenn gáfust ekki upp og með Guðjón Val í fararbroddi. Hann skoraði tvívegis á sömu mínútunni og náði þannig að minnka muninn í tvö mörk þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir. Síðustu mínúturnar voru æsispennandi. Guðjón Valur skoraði níunda mark sitt þegar 34 sekúndur voru eftir og minnkaði þar með muninn í 41-40. En Henrik Lundström skoraði svo á lokasekúndu leiksins og tryggði þar með Alfreð og félögum tveggja marka sigur. Úrslitin þýða að Kiel er komið á topp þýsku úrvalsdeildarinnar, um stundarsakir að minnsta kosti. Lemgo, Göppingen og Flensburg eru enn með fullt hús stiga eftir þrjá leiki en Kiel hefur leikið fjóra - unnið þrjá og gert eitt jafntefli. Þetta var fyrsti tapleikur Rhein-Neckar Löwen sem er um miðja deild.
Mest lesið Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Fleiri fréttir Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur EM í dag: Flensuleikur Vals og stemningslausir Svíar Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ „Íslenska geðveikin sem við tölum oft um, þetta var hún“ „Erfitt að lýsa þessari stemningu sem við náðum upp í vörninni“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Tölurnar á móti Svíum: Viggó 11 af 11 í skotum og 23 fleiri stopp en Svíar „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ „Allt sem vantaði í síðasta leik var til staðar í dag“ Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Fram sótti sigur fyrir norðan og ÍR endaði langa taphrinu Slóvenar unnu upp fjögurra marka forskot Ungverja og fögnuðu sigri Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö „Vantar meiri leiðindi og fávitaskap frá okkur“ „Miklu betra lið en Króatía“ Norðmenn með flautuna í Malmö „Hann er örugglega góður pabbi“ „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna „Eitt besta lið í heimi“ „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Danir komnir í gang á EM EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili „Það vantaði baráttuna“ Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Valskonur sóttu sigur til Eyja í toppslagnum Sjá meira