Viðskipti innlent

ÍLS tapar 8 til 12 milljörðum kr. á bönkunum

Íbúðalánasjóður (ÍLS) átti um 43 milljarða króna í innlánum, skuldabréfum og afleiðusamningum hjá íslensku bönkunum í byrjun október og má ætla að tap sjóðsins af þessum eignum muni nema átta til tólf milljörðum króna.

Hvert endanlegt tap sjóðsins verður, kemur þó ekki í ljós fyrr en í uppgjöri við skilanefndir bankanna. Þá skiptir miklu máli hvort eignir Íbúðalánasjóðs í bönkunum verða skuldajafnaðar á móti skuldum sjóðsins við bankana.

Í tilkynningu um málið segir að samkvæmt áhættu- og fjárstýringarstefnu sjóðsins ber sjóðnum að hafa yfir að ráða ákveðnu lausu fé til að geta mætt afborgunum af skuldum sínum og veitt lán til íbúðarkaupenda í ákveðinn tíma án þess að þurfa að sækja nýtt lánsfé út á markaðinn.

Þetta lausa fé hefur sjóðurinn ávaxtað innanlands, með innlánum og kaupum á markaðsbréfum innlendra lánastofnana. Í lögum um húsnæðismál er kveðið á um heimild Íbúðalánasjóðs til að eiga viðskipti með fjármögnunarbréf sín og önnur verðbréf.

Ekki er kveðið á um ákveðið eiginfjárhlutfall í lögum um Íbúðalánasjóð, en í reglugerð er gert ráð fyrir að það sé að jafnaði yfir 5% og gera þurfi viðeigandi yfirvöldum viðvart ef það stefni í að fara niður fyrir 4%. Eigið fé sjóðsins í lok júní nam 20,6 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall hans var 8%. Miðað við að tap sjóðsins verði tíu milljarðar króna, verður eigið fé hans 10,6 milljarðar króna og eiginfjárhlutfallið 4,1%.

Stjórn Íbúðalánasjóðs fjallaði um stöðu sjóðsins á stjórnarfundi í gær og málið hefur verið kynnt félagsmálaráðherra og eftirlitsstofnununum, Fjármálaeftirlitinu og Ríkisendurskoðun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×