ÍLS tapar 8 til 12 milljörðum kr. á bönkunum 18. nóvember 2008 09:59
Íbúðalánasjóður (ÍLS) átti um 43 milljarða króna í innlánum, skuldabréfum og afleiðusamningum hjá íslensku bönkunum í byrjun október og má ætla að tap sjóðsins af þessum eignum muni nema átta til tólf milljörðum króna. Hvert endanlegt tap sjóðsins verður, kemur þó ekki í ljós fyrr en í uppgjöri við skilanefndir bankanna. Þá skiptir miklu máli hvort eignir Íbúðalánasjóðs í bönkunum verða skuldajafnaðar á móti skuldum sjóðsins við bankana. Í tilkynningu um málið segir að samkvæmt áhættu- og fjárstýringarstefnu sjóðsins ber sjóðnum að hafa yfir að ráða ákveðnu lausu fé til að geta mætt afborgunum af skuldum sínum og veitt lán til íbúðarkaupenda í ákveðinn tíma án þess að þurfa að sækja nýtt lánsfé út á markaðinn. Þetta lausa fé hefur sjóðurinn ávaxtað innanlands, með innlánum og kaupum á markaðsbréfum innlendra lánastofnana. Í lögum um húsnæðismál er kveðið á um heimild Íbúðalánasjóðs til að eiga viðskipti með fjármögnunarbréf sín og önnur verðbréf. Ekki er kveðið á um ákveðið eiginfjárhlutfall í lögum um Íbúðalánasjóð, en í reglugerð er gert ráð fyrir að það sé að jafnaði yfir 5% og gera þurfi viðeigandi yfirvöldum viðvart ef það stefni í að fara niður fyrir 4%. Eigið fé sjóðsins í lok júní nam 20,6 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall hans var 8%. Miðað við að tap sjóðsins verði tíu milljarðar króna, verður eigið fé hans 10,6 milljarðar króna og eiginfjárhlutfallið 4,1%. Stjórn Íbúðalánasjóðs fjallaði um stöðu sjóðsins á stjórnarfundi í gær og málið hefur verið kynnt félagsmálaráðherra og eftirlitsstofnununum, Fjármálaeftirlitinu og Ríkisendurskoðun.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira