Segir Kauphöllina ekki óstarfhæfa 17. október 2008 12:32
Þrátt fyrir gríðarlegt fall á verðmæti fyrirtækja í Kauphöll Íslands í viðskiptum upp á aðeins nokkur þúsund krónur, er hún ekki óstarfhæf, segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar íslands. Hann segir að ekki komi til greina að loka henni. Úrvalsvísitalan stendur nú í 640 stigum og hefur ekki verið lægri frá árinu 1996. Gengi bréfa í Kauphöll Íslands hafa svo sannarlega verið á ferð og flugi í vikunni. Gengi bréfa Bakkavarar féll til að mynda um 11 prósent í gær og skýra viðskipti upp á aðeins 2.338 krónur fallið. Þá féll gengi bréfa Alfesca um annað eins í fyrradag og skýrðu fjögur viðskipti upp á 5000 krónur það fall. Þá féll gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu um 67 prósent sama dag og stendur gengi bréfa í félaginu í hálfri krónu á hlut og þá féll Atorka um 75 prósent í aðeins tveimur viðskiptum í gær upp á samanlagt tæplega 100 þúsund krónur. Menn velta því óneitanlega fyrir sér hvort Kauphöllin sé ekki einfaldlega óstarfhæf. Því hafnar Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar. Þá má þess geta að Atorka Group hefur farið fram á það við Kauphöllina að hlutabréf félagsins verði tekin úr viðskiptum. Félagið segir skilyrði fyrir skipulögðum verðbréfamarkaði hér naumast fyrir hendi. Eftir afskráningu verða félögin 17 talsins í Kauphöllinni. Þórður segir að eflaust muni fleiri fyrirtæki óska eftir afskráningu. Með tíð og tíma verði þó breyting þar á. Kauphöllinni verði ekki lokað. Enn eru þó engin viðskipti með bréf Straums, SPRON og Existu að ákvörðun FME.
Mest lesið Verðbólgja hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólgja hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Sjá meira