Straumur átti 8,5 milljarða kr. inni hjá Lehman Brothers í Evrópu 18. september 2008 12:15
Straumur átti 8,5 milljarða kr. inni hjá Lehman Brothers í Evrópu þann 15. september s.l. Þar af voru 48,2 milljónir evra í peningum og 16,8 milljónir evra í hlutabréfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straumi. Straumur segir að félagið beri enga beina áhættu vegna Lehman Brothers Holdings, Inc, hvorki vegna fjárfestinga í hlutabréfum né skuldum félagsins, lánveitinga til þess né með nokkrum öðrum hætti. Straumur ber hins vegar áhættu af hinu breska félagi Lehman Brothers International Europe ("LBIE"), einkum vegna þess að LBIE var miðlari og jafnframt gagnaðili Straums í viðskiptum með afleiður. Vegna þessara viðskipta átti Straumur hinn 15. september 2008 tryggingainnistæður hjá LBIE að fjárhæð 48,2 milljónir evra í peningum og 16,8 milljónir evra í hlutabréfum. Straumur gerir kröfu um endurheimt þessara trygginga. Auk þessa gerir Straumur tilkall til hagnaðar af téðum viðskiptum að fjárhæð 6,0 milljónir evra sem bankinn á inni hjá LBIE. Öllum viðskiptasamningum sem að baki lágu hefur verið lokað án teljandi kostnaðar. Í öðru lagi hafði Straumur selt skuldatryggingar á Lehman Brothers Holding, Inc, að hluta til í því skyni að vega upp á móti annarri áhættu af tilteknum öðrum viðskiptum, og nemur tryggingarfjárhæðin alls 29 milljónum evra. Ekki liggur fyrir hvenær og enn síður hvernig farið verður með kröfur á hendur Lehman Brothers Holding og tengdum félögum. Straumur getur því ekki á þessu stigi lagt mat á hvort og þá hve mikið bankinn kann að þurfa að afskrifa vegna þessa. Í tilkynningunni segir að fyrir liggi að það mun ekki hafa teljandi áhrif á lausafjárstöðu Straums og takmörkuð áhrif á sterkt eiginfjárhlutfall bankans. "Við höfum á undanförnum tveimur árum eða svo dregið verulega úr áhættu í efnahagsreikningi Straums með því að minnka hlutafjáreign bankans til muna. Enn fremur höfum við innleitt mjög öfluga áhættustýringu í rekstri bankans," segir William Fall, forstjóri Straums. „Ég legg hins vegar áherslu á að vegna óvissunnar sem uppi er, meðal annars um hugsanlega sölu á þeirri starfsemi á vegum Lehman sem Straumur átti viðskipti við, er ekki tímabært að varpa fram getgátum um hvort og þá hvert mögulegt tjón bankans kann að verða."
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira