Örlög Baugs ráðast um helgina 11. október 2008 22:12 Philip Green.
Framtíð Baugs Group ræðst um helgina. Sir Philip Green hefur boðist til að kaupa skuldir félagsins við íslenska banka á ríflegum afslætti af íslenska ríkinu. Ef því boði verður ekki tekið er talið líklegt að breska ríkisstjórnin muni þjóðnýta öll fyrirtæki í eigu Baugs í Bretlandi til að vernda þau rúmlega 50 þúsund störf sem þar eru. Segja má að Green, sem er einn ríkasti maður Bretlands, hafi stillt íslenska ríkinu upp við vegg. Green hefur samkvæmt heimildum fréttastofu boðist til að kaupa skuldir Baugs við Landsbankann og Kaupþing gegn því að fá ríflegan afslátt. Ekki er vitað hversu hátt hlutfall Green er tilbúinn til að borga af skuldunum. Ef samkomulag næst ekki gæti íslenska ríkið þurft að afskrifa hverja krónu af þeim rúmlega 300 milljörðum sem bankarnir tveir hafa lánað Baugi á undanförnum árum. Staða Baugs í Bretlandi er afleit vegna milliríkjadeilu Breta og Íslendinga og hafa fyrirtæki í eigu þess fengið að finna fyrir andúðinni í garð íslensku eigendanna. Fyrirtæki á borð við House of Fraser, Iceland, Karen Millen og Hamleys, hafa misst lánstraust hjá birgjum sínum og ef ekkert verður að gert geta fyrirtækin hvert af öðru farið í þrot og orðið verðlaus. Það myndi síðan þýða að dagar Baugs væru taldir. Heimildir fréttastofu herma að Green sé í afar góðu sambandi við Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, sem vill fyrir alla muni að framtíð fyrirtækja Baugs verði tryggð enda yfir 50 þúsund störf í húfi. Ef Green tekur yfir skuldir félagsins nær hann meirihlutaeign í Baugi og líklegt að ró komist á hjá fyrirtækjum í eigu þess. Ef ekkert samkomulag næst er mögulegt að Brown þjóðnýti fyrirtækin til að vernda þau störf sem í húfi eru. Málið er nú í höndum skilanefnda Landsbankans og Kaupþings. Lokaákvörðunin liggur þó alltaf hjá Björgvini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra sem fundaði einmitt með Green í gær. Baugur Group er fjárfestingafélag sem er í meirihlutaeigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Félagið á eingöngu eignir í Bretlandi og Danmörku. Allar eignir félagsins á Íslandi voru seldar í sumar til Gaums, sem er í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu, og tengdra félaga.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira