Viðskipti innlent

Standard & Poor's breytir lánshæfiseinkunn Glitnis

Höfuðstöðvar Glitnis við Kirkjusand.
Höfuðstöðvar Glitnis við Kirkjusand.

Matsfyrirtækið Standard & Poor's tilkynnti í dag að það hefði lækkað einkunn sína á Glitni sem mótaðila úr BBB+/A2 í BBB/A-3. Ennfremur lækkar fyrirtækið einkunn sína á víkjandi skuldabréfum Glitnis í BB. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glitni.

Tilkynningin kemur í kjölfar tilkynningar þar sem Standard & Poor's lækkar lánshæfismatseinkunn ríkissjóðs vegna skuldbindinga í erlendri mynt úr A/A-1 í A-/A-2. Þá lækkar matsfyrirtækið einnig einkunn ríkissjóðs vegna skuldbindinga í íslenskum krónum úr A+/A-1 í AA-/A-1+.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×