Niðursveiflan verður út næsta ár að mati Glitnis 17. september 2008 08:58 MYND/Heiða
Greiningardeild Glitnis gerir ráð fyrir að niðursveilfan hér á landi muni standa út næsta ár en að hagkerfið taki aftur við sér árið 2010. Enn fremur telur greiningardeildin að íslenska fjármálakerfið standist þá ágjöf sem nú einkennir hið alþjóðlega fjármálakerfi. Þetta var meðal þess sem fram kom á morgunverðarfundi greiningardeildarinnar þar sem kynnt var þjóðhagsspá fyrir árin 2008-2011. Fram kom í máli Jóns Bjarka Bentssonar, hagfræðings hjá greiningardeild Glitnis, að síðustu fimm ár hefðu verið uppgangstími í íslensku efnahagslíf sem hefðu einkennst af miklum hagvexti og almennri velmegun. Þetta hefði meðal annars verið ávöxtur umfangsmikilla kerfisbreytinga og stóriðju. Við þetta hefði bæst almenn neyslugleði sem drifin hefði verið áfram af kaupmáttaraukningu. „Þetta skeið er nú á enda og við tekur aðlögun," sagði Jón Bjarki og bætti við að hún væri tímabær og nauðsynleg. Hann sagði enn fremur að greiningardeild Glitnis hefði lagst yfir tölur og söguna og út frá því teldi hún að lendingin í íslensku hagkerfi sem yrði tiltölulega farsæl. Bankinn spáði því að landsframleiðsla yrði óbreytt frá síðasta ári á þessu ári og einnig því næsta. Þjóðarútgjöldin myndu dragast saman á þessum árum eftir geysimikinn vöxt undanfarin ár og fyrirtæki og heimili þyrftu að herða sultarólina. Heimilin væru hins vegar vel búin undir niðursveiflu því þau hefðu notið kaupmáttaraukningar og hækkandi eignvaverðs. Greiningardeildin gerir enn fremur ráð fyrir að einkaneysla taki aftur við sér árið 2010 með styrkari krónu og meira jafnvægi í utanríkisviðskiptum. Horfur séu á ágætum hagvexti í framhaldinu án þess að til komi sú spenna og sú þensla sem einkennt hafi síðustu ár.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira