Seðlabankinn hafnar tilboðum í rúmlega helming ríkisbréfa 25. september 2008 16:52
Seðlabanki Íslands hélt í dag útboð í tvo flokka ríkisbréfa. Eftirspurn virðist hafa verið sæmileg í útboðinu því alls bárust tilboð fyrir 20,1 milljarð kr. Það vekur hins vegar athygli að Seðlabankinn skuli einungis taka tilboðum fyrir níu milljarða kr.. Greining Kaupþings fjallar um málið í Hálf fimm fréttum sínum. Þar segir að gífurleg eftirspurn myndaðist eftir ríkisbréfum fyrr á árinu þegar kjör á gjaldeyrisskiptamarkaði versnuðu til muna. Nú hafa sömu aðstæður komið upp aftur og krónan hefur fallið mikið vegna þess hve lágir krónuvextir bjóðast á gjaldeyrisskiptasamningum. „Niðurstaðan í útboðinu virðast benda til þess að áhugi eftir nafnvaxtabréfum sé að einhverju leyti að dvína. Einnig er vert að benda á að ekki var framlengt öllum innstæðubréfum Seðlabankans sem féllu á gjalddaga í gær," segir í Hálf fimm fréttum. „Af þeim 75 milljörðum innstæðubréfa sem voru á gjalddaga var einungis 66 milljörðum framlengt á 15,25% vöxtum." Greining nefnir einnig að samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabankans hefur stöðutaka með krónunni - sem birtist í framvirkri stöðu bankakerfisins - minnkað um 50 milljarða kr. á breytilegu gengi fram til 19. september. Staðan hefur því væntanlega minnkað um rúmlega 100 milljarða kr. á breytilegu gengi og er það ákveðin vísbending um að erlendir fjárfestar hafi lokað stöðum sínum í krónunni og leiti síður eftir ávöxtun í ríkisbréfum.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira