Krónan tók óvæntan sprett Óli Kristján Ármannsson og Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar 25. september 2008 18:00 Innlendir fjárfestar seldu erlendan gjaldeyri rétt fyrir lokun viðskiptadagsins í gær. Það skilaði sér í snarpri styrkingu krónunnar. Fréttablaðið/GVA
Gengi krónunnar tók sprett um stundarfjórðungi fyrir lokun gjaldeyrismarkaða í gær eftir nokkra veikingu framan af degi og styrktist gengi krónunnar um 1,87 prósent þegar yfir lauk. Gengisvísitalan, sem hafði snert tæp 183 stig um þrjúleytið, endaði í 178,8 stigum. Þetta er fimmti dagurinn í mánuðinum sem krónan styrkist en annað skiptið sem hækkunin er meiri en eitt prósent. Vísitalan hefur legið í hæstu hæðum upp á síðkastið og endaði í hæsta gildi, 181,4 stigum, í fyrradag. Veltan nam samtals 25,8 milljörðum króna á gjaldeyrismarkaði í gær. Eftir því sem Markaðurinn kemst næst skýrist styrkingin í lok dags af því að innlendir fjárfestar hafi ekki talið líkur á að evran muni rjúfa 140 krónur í bráð og því selt evrur og bandaríkjadali í skiptum fyrir krónur í töluverðu magni. Þá megi einnig vera að einhver hluti styrkingarinnar liggi í því að Landsbankinn hefur sett þak á samningsupphæðir í afleiðusamningum með gjaldeyri en það hefur verið lækkað úr 300 milljónum króna í 100 milljónir. Samkvæmt heimildum Markaðarins kemur þetta fram í tölvupósti sem starfsmaður bankans sendi fyrir mistök á hóp viðskiptavina. Í bréfinu kom fram að ástæða lækkunar þaksins væri sú að verið væri að verja eiginfjárstöðu bankans. Slíkt þak er ekki hjá hinum stóru viðskiptabönkunum, eftir því sem Markaðurinn kemst næst.
Mest lesið Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Tilfallandi neftóbaksskortur veldur sjálfta Viðskipti innlent 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Viðskipti innlent Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Viðskipti innlent Lausnamiðuð ferilskrá og að þora Atvinnulíf Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tilfallandi neftóbaksskortur veldur sjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Sjá meira