Minden bjargaði sér frá falli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2008 17:13 Kiel tók við sigurlaunum sínum í dag. Nordic Photos / Bongarts
Minden náði í dag að bjarga sér frá falli úr þýsku úrvalsdeildinni í handbolta en Íslendingaliðin Lübbecke og Wilhelmshaven féllu í B-deildina. Einar Örn Jónsson átti stórleik og skoraði sex mörk fyrir Minden sem vann ótrúlegan sigur á Flensburg, 29-28, sem dugði liðinu til að bjarga sér frá falli. Minden sleppur líka við umspilið en liðið hafnaði í fjórða neðsta sæti með átján stig, rétt eins og Essen og Lübbecke. Essen fer í umspilið en Lübbecke verður að sætta sig við fall í B-deildina þrátt fyrir sigur á Füchse Berlin í dag, 30-26. Þórir Ólafsson lék ekki með Lübbecke í dag vegna meiðsla en Birkir Ívar Guðmundsson lék kveðjuleik sinn með liðinu í dag. Essen gerði jafntefli við Melsungen, 35-35, eftir að hafa verið undir lengst af í leiknum. Andrei Siniak skoraði jöfnunarmark liðsins þegar sextán sekúndur voru til leiksloka og tryggði þar með sínum mönnum rétt til að spila við lið úr B-deildinni um laust sæti í úrvalsdeildinni. Alexander Petersson skoraði þrjú mörk fyrir Flensburg í dag en Einar Hólmgeirsson komst ekki á blað. Þetta var einnig kveðjuleikur hans með félaginu en hann hefur samið við Grosswallstadt um að leika með félaginu á næstu tveimur tímabilum. Wilhelmshaven tapaði fyrir Rhein-Neckar Löwen í dag, 37-30, og hafnaði í neðsta sæti með fjórtán stig. Gylfi Gylfason skoraði sex stig fyrir Wilhelmshaven. Kiel var þegar búið að tryggja sér meistaratitilinn en liðið endaði með sjö stiga forystu á Flensburg og Hamburg sem komu næst. Rhein-Neckar Löwen varð í fjórða sæti og Nordhorn í því fimmta og taka því þátt í EHF-bikarkeppninni á næstu leiktíð. Þrjú fyrstnefndu liðin keppa í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Gummersbach varð í sjötta sæti með 41 stig, 20 á eftir Kiel. Liðið tapaði fyrir Magdeburg í dag, 35-33, á heimavelli. Guðjón Valur Sigurðsson lék kveðjuleik sinn með félaginu og skoraði átta mörk. Hann leikur með Rhein-Neckar Löwen á næstu leiktíð. Sverre Andreas Jakobsson lék einnig kveðjuleik sinn með félaginu. Róbert Gunnarsson skoraði sjö mörk fyrir Gummersbach í dag. Lemgo varð í sjöunda sæti deildarinnar með 39 stig. Liðið tapaði fyrir Nordhorn í dag, 41-39, á útivelli. Logi Geirsson lék ekki með Lemgo í dag. Göppingen varð í níunda sæti með 31 stig. Liðið tapaði fyrir Hamburg í dag, 29-24, á útivelli. Jaliesky Garcia skoraði eitt mark fyrir Hamburg.
Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur Körfubolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Sjá meira