Ísland keppir í undankeppni ÓL Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. janúar 2008 20:43 Íslendingar geta þakkað Ivano Balic og félögum í króatíska landsliðinu fyrir sætið í undankeppni ÓL. Nordic Photos / Bongarts
Þökk sé hagstæðum úrslitum á EM í handbolta í Noregi í dag er öruggt að Ísland keppir í undankeppni Ólympíuleikanna í Peking í vor. Ísland þurfti að treysta á að eitthvert þeirra liða sem lenti í 2.-7. sæti á HM í Þýskalandi í fyrra myndi verða Evrópumeistari í ár. Þá myndi Ísland taka sæti viðkomandi lands í undankeppni ÓL. Danmörk, Króatía, Frakkland og Þýskaland komust í undanúrslit í dag en þau voru á meðal efstu sjö liðanna á HM í fyrra. Þýskaland varð heimsmeistari í fyrra en ef þeir verða einnig Evrópumeistarar færist sætið sem var frátekið fyrir Evrópumeistaranna til liðsins sem lendir í öðru sæti á EM. Þar sem aðeins lið sem lentu í 2.-7. sæti á HM í fyrra komust í undanúrslitin er engin hætta á öðru en að Ísland taki sæti eitt þeirra liða í undankeppni ÓL, hvort sem Þýskaland verður Evrópumeistari eða ekki. Frakkar tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitunum en í dag bættust Danir, Króatar og Þjóðverjar í hópinn. Danir unnu fimm marka sigur á Slóvenum, 28-23, og Þjóðverjar unnu Svía í miklum spennuleik, 31-29. Svo nú síðast í kvöld gerðu gestgjafar Noregs og Króatar jafntefli, 23-23, í hreinum úrslitaleik um hvort liðið kæmist í undanúrslitin. Króötum dugði hins vegar jafnteflið og komust því í undanúrslitin. Staðan var jöfn, 19-19, þegar tíu mínútur voru til leiksloka en Norðmenn höfðu verið með undirtökin seinni hluta fyrri hálfleiks og í upphafi þess síðari. En Króatar tóku frumkvæðið í leiknum um miðjan síðari hálfleikinn og virtust ætla að sigla fram úr. Heimamenn létu þó ekki segjast og héldu í við geysisterkt lið Króata. Króatar komust aftur í tveggja marka forystu, 22-20, þegar fáeinar mínútur voru til leiksloka. Norðmenn minnkuðu muninn í eitt mark og unnu svo boltann þegar ein og hálf mínúta var eftir af leiknum. Þeir létu hins vegar verja frá sér og það sló þögn á áhorfendur er Króatar héldu í sókn er rúm mínúta var eftir. En Steinar Ege, sem hefur verið frábær á þessu móti, varði frá Ivano Balic og Norðmenn jöfnuðu svo metin úr hraðaupphlaupi. En Balic sannaði sig enn og aftur sem einn besti leikmaður heims er hann kom Króötum yfir, 23-22. Norðmenn jöfnuðu en það var ekki nóg - sem betur fer fyrir okkur Íslendinga.
Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Íslenski boltinn Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Már getur andað aftur: „Ég bara man eiginlega ekki eftir þessari tilfinningu“ Sport Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira